Fréttabréf Nemendafélags Háskólans á Bifröst Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa BIFRESTINGURINN Ávarp formannsÁgætu nemendur Útgáfa fréttabréfs Bifrestinga er söguleg í ljósi þess að Háskólinn á Bifröst er 100 ára. Fjölgun nemenda um 25% er fagnaðarefni og hafa erlendir nemendur aldrei verið fleiri. Sérstaða skólans er ekki sú að hann sé einkarekinn heldur að kennarar og starfsfólk skólans þekkja nemendur með nafni og eiga við þá náið, faglegt samstarfs sem þekkist ekki víða. Vilhjálmur Egilsson rektor segir að Bifröst sé eins og lítil heimsborg og er margt til í þeim efnum. Alþjóðleg verkefni sem nemendur hafa kost á að taka þátt í fjölgar jafnt og þétt og þá víkkar það tengslanetið að hafa erlenda nemendur við skólann. Aðstaða nemenda hefur tekið stakkaskiptum í sumar og vill nemendaráðið þakka nemendum, kennurum og starfsmönnum skólans fyrir hjálpina. Kosningar eru innan seilingar og eru fjölmörg embætti laus innan skólans sem og hjá Landsamtökum íslenskra stúdenta. Ég skora á nemendur að taka þátt í hagsmunabaráttu okkar sem og félagstarfi. Þá er vert að nefna að nýnemaballið verður haldið af Hollvinasamtökum Bifrastar en stórhljómsveitin Upplyfting treður upp og heyrst hefur að gamlir Bifrestingar ætli að fjölmenna. Að lokum ber að hrósa ritstjórn fréttabréfsins en hún hefur unnið lofsvert starf í eigin frítíma við að gera útgáfu þessa að veruleika. Til hamingju með afmælið Bifrestingar. Steinþór Jón Gunnarsson Háskólinn á Bifröst fagnar 100 ára afmæli sínu í ár en hann á rætur að rekja til Samvinnuskólans sem stofnaður var árið 1918. Við það merka tilefni hefur skólinn staðið fyrir ýmsum viðburðum og verða fleiri til á komandi hausti. Þá kemur Nemendafélagið til með að halda reglulega viðburði í allan vetur. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá félagsins verður nánar tíunduð hér að neðan og í næstu útgáfum fréttabréfsins. Nú þegar hefur skólinn og Nemendafélagið tekið vel á móti nýnemum, bæði í grunnnámi og háskólagáttinni. Daníel Alexander Cathcart Jones, þrátt fyrir að vera enginn nýnemi, mætti á svæðið og sá til þess að allt fór vel fram. Í dagbók hans, að gleðinni lokinni, kom eftirfarandi fram: Vel heppnaðir nýnemadagar, húsrífandi stemming í boði okkar yndisfagra formanns og ný andlit er það sem prýddi seinustu helgar er nýjum nemendum var vel
tekið í gömlu búðinni, aðstöðu Nemendafélagsins. Steinþór hefur svo sannarlega tekið nýju nemendaaðstöðuna í gegn og búið til safe haven fyrir þreytta háskólanemendur til að slaka á, slaka í sig einni ískaldri Nocco dós eða henda í andlitið á sér einum snakkpoka, það er afslöppun í lagi. En hjá okkur liggur einnig ábyrgð. Við erum gestgjafar stórfengslegs hóps af skiptinemum sem hingað eru komnir frá Japan, Tékklandi, Hollandi, Kanada og fleiri löndum. Það er því mikilvægt að þú lesandi góður gefi af þér það besta þegar þegar þú loks hittir þau, því þau eru æðisleg og komst ég að því að það þýddi ekkert fyrir mig að spyrja „how do you like Iceland?“ sökum þess að þau höfðu verið hér í einn dag, en þú mátt endilega láta mig vita hvert svarið verður! Seint um kvöld var sungið og spilað með hástöfum þar sem einn skemmtilegasti kennarinn, hann Aron, þandi lungun svo á sást á hljóðhimnum undirritaða. Það bar ekki að sök því söngurinn var svo fallegur, því eitt er víst - beauty is pain. Þetta var án efa með betri nýnemadögum sem hafa verið og hlökkum við öll í nefndini til næstu vinnuhelgar þar sem fleiri minningar og tengsl verða til. -Daníel. Fyrsta vinnuhelgin á haustönn fer fram nú í miðjum september og þann 14. ganga nemendur við skólann til kosninga og velja sér fulltrúa í ráð, nefndir og stjórn Nemendafélagsins. Við leitum því að dugmiklu fólki til að hjálpa okkur og efla starf félagsins á komandi vetri. Hér að neðan má sjá stuttar lýsingar á þeim embættum sem í boði eru en allir nemendur við háskólann á Bifröst eru hvattir til að taka þátt; bæði bjóða sig fram, telji þeir krafta sína koma að notum, sem og að kjósa. Framboð, ásamt kynningu á viðkomandi, skal berast í tölvupósti á nemendafelag@bifrost.is til og með 12. september. Sem fyrr segir verður svo kosið 14. september. Opnað verður fyrir kosningar að morgni föstudags og opið fram eftir degi (líklega 8-15). Eingöngu verður kosið í gegnum myschool. Allir nemendur verða skráðir í námskeiðið „Rafræn kosning“ og munu fylla út kjörseðil sem „próf“ á myschool. Óskað er eftir framboðum í eftirfarandi, feitletruð embætti. Stjórn Nemendafélagsins Varaformaður Nemendafélagsins Varaformaður er formanni til aðstoðar og stjórnar í forföllum hans. Einnig hefur hann jafnan verið ritari á fundum Nemendafélagsins auk þess að starfa með Nemendafélaginu . Fulltrúi fjarnema í stjórn Nemendafélagsins Fulltrúi fjarnema er formaður Hagsmunafélags Fjarnema á Bifröst (HFFB). Hann er jafnframt tengiliður HFFB við stjórn nemendafélagsins. Fulltrúi fjarnema situr á fundum nemendafélagsins líkt og aðrir fulltrúar þess, hvort sem það er í gegnum fjarfundarbúnað eða í eigin persónu. Fulltrúi nýnema í stjórn Nemendafélagsins Fulltrúi nýnema stendur vörð um hagsmuni nema sem stunda nám við skólann á fyrsta ári. Fulltrúi nýnema bætist við í stjórn Nemendafélagsins, sem iðulega er kosin á vorönn. Hann sinnir að öðru leyti þeim störfum er formaður felur honum. Skemmtinefnd Starfar undir skemmtanafulltrúa, sem er formaður nefndarinnar. Skemmtinefnd ber ábyrgð á því að halda viðburð einu sinni í viku fyrir nemendur og þá ber nefndinni einnig að sjá um skemmtanir á fjarnemahelgum. Þá hefur skemmtinefndin umsjón með öllum stóru viðburðum Nemendafélagsins í samráði við stjórn nemendafélagsins. Hagsmunaráð Háskólans á Bifröst Háskólaráð er ráðgefandi í málum háskólasamfélagsins og hefur tilnefningarrétt í stjórn skólans og fulltrúaráð samkvæmt skipulagsskrá hans. Á fundum háskólaráðs er fjallað um helstu málefni skólans á líðandi stundu, innra starf hans, breytingar á reglum og stefnumörkun hans. Háskólaráð er ályktunarbært og getur gert tillögur til rektors eða stjórnar skólans. Íbúaráðsfulltrúi er tengiliður íbúa á svæðinu við Háskólann og Borgarbyggð. Honum er ætlað að gæta hagsmuna íbúa í málum er varðar svæðið og það sem að því snýr. Jakabólsráð Áfrýjunarnefnd og jafnréttisnefnd Fulltrúar í þessum nefndum sitja í miðstjórn og koma með áherslur sinna sviða. Deildarráð Meðlimir hafa gæðamál innan deilda á sinni könnu. Merkúr – félag viðskiptafræðinema Formaður Verus – félag félagsvísindanema Formaður
Skemmtinefnd Nemendafélagsins stendur fyrir fjölmörgum viðburðum í hverjum mánuði. Margir þeirra eru skipulagðir fram í tímann og auglýstir hér að neðan á meðan aðrir gætu verið haldnir óundirbúningslaust. Reynt er að hafa viðburðina fjölbreytta svo allir geti fundið sér eitthvað við hæfi. Þá ber að vekja sérstaka athygli á sveitaballi Bifrestinga sem verður haldið föstudaginn 14. september næstkomandi en það er liður í afmælishátið skólans. Léttar veitingar verða í boði og á dagskrá verður m.a. að rifja upp gamlar sögur Bifrestinga áður en hljómsveitin Upplyfting stígur á stokk. Sveitaballið og aðrir viðburðir eru merktir inn á dagatalið hér að neðan. Nafn: Kristófer Kristjánsson Nafn: Daníel Alexander Cathcart Jones Nafn: Viktor Örn Guðmundsson Fréttabréf Bifrestinga er vettvangur fyrir alla áhugasama nemendur til að koma á framfæri hverju sem viðkemur leik og starfi við skólann. Hafir þú áhuga á að senda inn pistil eða hverskonar efni í fréttabréf þetta, hvetjum við þig til að hafa samband á nemendafelag@bifrost.is. Fylgstu með á samfélagsmiðlum! |