Ólafur Elíasson opnar vinnustofu á Íslandi opna almenningiVerið velkomin á opnun Ólafs Elíassonar í Marshallhúsinu, laugardaginn 18. mars á milli klukkan 14 og 18.Listamaðurinn Ólafur Elíasson mun opna vinnustofu í Marshallhúsinu að Grandagarði 20 í Reykjavík. Þessi vinnustofa verður rekin samhliða aðalstúdíói hans í Berlín. Marhallhúsið er gamalt fiskvinnsluhús á athafnasvæði HB Granda, sem hefur tekið gagngerum stakkaskiptum á undaförnum mánuðum. Marshallhúsið verður sömuleiðis framtíðarhúsnæði Kling & Bang og Nýlistasafnsins ásamt því að hýsa Marshall Restaurant + Bar. Vinnustofa Ólafs verður að hluta opin almenningi. Þann 18. mars 2017 opnar sýning á verkum hans frá því snemma á ferlinum allt til dagsins í dag. Sýnd verða verk af ólíkum toga, þar á meðal innsetningar, skúlptúrar og málverk. Verkunum er ætlað að opna möguleika fyrir áhorfandann til að rannsaka ólíkar upplifanir, hreyfingu, rýmiskennd og rúmfræðilega uppbyggingu. Studio Olafur Eliasson í Berlín hefur um langt skeið verið vettvangur listrænnar sköpunar. Teymið í stúdíóinu vinnur með Ólafi við framleiðslu og uppsetningu verka, sértæk verkefni og sýningar. Þau eru jafnframt samstarfsmenn hans í tilraunum, rannsóknum, útgáfu, fræðslu og miðlun upplýsinga. Auk þess að fást við gerð verka í vinnustofunni starfar stúdíóið líka með byggingaverkfræðingum og öðrum sérfræðingum í samstarfi við menningarstofnanir og vísindamenn um allan heim. Í því samhengi verður vinnustofan í Reykjavík lítil og óformlegri eining, þar sem ætlunin er að skapa rými fyrir hugsun og tilraunir sem unnar verða í íslensku samhengi. Allar frekari upplýsingar um vinnustofu Ólafs Elíassonar og verk hans veita Þorlákur Einarsson eða Auður Jörundsdóttir í síma 551 3666 eða með tölvupósti: thorlakur@i8.is / audur@i8.is Frekari upplýsingar um Studio Olafur Eliasson: olafureliasson.net |