No images? Click here

Þurfum að halda áfram að efla útflutning

 
 

„Við eigum bara að halda áfram að efla útflutning og styrkja stoðirnar. Það er að sjálfsögðu hlutverk stjórnvalda núna að hjálpa okkur við það. Nú ætla þau að fara að leggja fram fjárlög og ég óttast það svolítið að það sé verið að fara boða okkur gjaldhækkanir og skattahækkanir sem gætu orðið íþyngjandi fyrir atvinnulífið,“ sagði Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, í samtali við RÚV í gær, sunnudag, „sem er afleitt á þessum tíma þegar við þurfum virkilega á því að halda að styrkja stoðirnar og reyna að auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun í íslensku atvinnulífi,“ 

Lestu fréttina á vef RÚV
 

„Við erum búin að tapa heilu ári í baráttunni við verðbólguna“ 

 

„Við erum búin að tapa heilu ári í baráttunni við verðbólguna,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA í samtali við RÚV á fimmtudag. Hann sagði að síðastliðið ár hafi verðbólgan aukist vegna hækkana hjá hinu opinbera en þá hafi utanaðkomandi áhrif sem Íslendingar hafa ekki stjórn á einnig spilað inn í.

„Við þurfum að taka það líka til okkar. Það þarf að gæta að því þegar gerðir eru kjarasamningar að menn ráðstafi ekki fyrir fram svo ríflega öllu svigrúmi að það megi ekkert á bjáta.“

Lestu fréttina á vef RÚV
 

Flutningskerfið má ekki verða hemill á verðmætasköpun

 

Takmarkanir í flutningskerfi raforku kostuðu íslenskt samfélag um 5,3 milljarða króna árið 2022. Í umsögn SA um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfisins er lögð áhersla á að horfa þurfi til kostnaðarins af því að byggja ekki upp innviðina. Flutningskerfið þarf að mæta þörfum morgundagsins og styðja við verðmætasköpun, orkuskipti og orkuöryggi án þess að leggja óþarfan kostnað á fyrirtæki og heimili.

Lestu fréttina á vef SA
 

Einfaldara regluverk hraðar uppbyggingu

 

Flókið og tímafrekt regluverk í skipulags- og byggingarmálum tefur uppbyggingu, eykur kostnað og dregur úr fyrirsjáanleika. SA fagna því áformum um einfaldari og skilvirkari skipulagsferla en leggja áherslu á að ganga þurfi lengra og hraða heildarendurskoðun skipulags- og byggingarregluverks.

Stöðugt framboð húsnæðis og innviða snertir ekki aðeins húsnæðismarkaðinn heldur er það forsenda aukins efnahagslegs stöðugleika.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Hagkerfið á lýðveldistímanum

 

„Óháð gjaldmiðlamálum og skemmri tíma áskorunum hafa Íslendingar verið framúrskarandi í að ráða eigin högum. Lýsa mætti hagkerfinu á lýðveldistímanum sem efnahagsundri þar sem skynsöm nýting auðlinda og öflugur vinnumarkaður hafa verið í forgrunni,“ skrifar Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA í Endahnút í Viðskiptablaðinu.

Lestu pistilinn á vef Viðskiptablaðsins
 

Forsætisráðherra ávarpar Ársfund atvinnulífsins 1. október

 
 

Dagskrá Ársfundar atvinnulífsins er í mótun og hefur forsætisráðherra þegið boð um að ávarpa fundinn. Fundurinn verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 1. október undir yfirskriftinni Við sækjum fram.

Ársfundurinn er einn stærsti vettvangur landsins fyrir samtal atvinnulífs, stjórnvalda og annarra lykilhagaðila um stöðu efnahagsmála og framtíð íslensks samfélags.

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu verða kynntar bráðlega. Þangað til hvetjum við félagsmenn og aðra áhugasama til að taka daginn frá.

Skráðu þig á Ársfund atvinnulífsins
 

Ályktun stjórnar SA um stöðuna á vinnumarkaði

 

„Stjórn Samtaka atvinnulífsins kallar eftir því að stjórnvöld axli sína ábyrgð á stöðugleika og samkeppnishæfni og breyti um kúrs. Samtökin eru reiðubúin til samtals við stjórnvöld og verkalýðshreyfinguna um aðgerðir sem ná niður verðbólgu og vöxtum, styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins og leggja þannig grundvöll að nýju vaxtarskeiði.

Áður en hægt er að skipta verðmætum þarf að skapa þau.“ segir í ályktun stjórnar Samtaka atvinnulífsins frá 18. ágúst síðastliðnum.

Lestu ályktunina á vef SA
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe