No images? Click here

Umhverfisdagur atvinnulífsins er í næstu viku

 

Hvernig tryggjum við að loftslagsárangur og samkeppnishæfni fari saman? Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Í metnaðarfullri dagskrá ræðum við sérstöðu Íslands og öfluga hagsmunagæslu við mótun og innleiðingu evrópsks regluverks.

Þátttakendur:
Aðalheiður Snæbjarnardóttir · Agla Huld Þórarinsdóttir · Álfheiður Ágústsdóttir · Bjarni Benediktsson · Björn Brynjúlfsson · Erla Sigríður Gestsdóttir · Guðný Hjaltadóttir · Guðrún Aðalsteinsdóttir · Guðrún Helga Heiðarsdóttir · Gunnar Þór Pétursson · Hafsteinn Snæland Grétarsson · Hildur Hauksdóttir · Hólmfríður Kristjánsdóttir · Ingólfur Friðriksson · Jón Ásgeirsson · Jón Ólafur Halldórsson · Kristinn Már Reynisson · Kristín Linda Árnadóttir · Kristjana Arnarsdóttir · Lilja Björk Guðmundsdóttir · Magnús Örn Agnesar Sigurðsson · María Rut Ágústsdóttir · Ragna Árnadóttir · Ríkharður S. Ríkharðsson · Sigurður Helgi Birgisson · Steinar Þór Ólafsson · Una Jóhannsdóttir

Á Umhverfisdegi atvinnulífsins verður einnig tilkynnt hver hlýtur titilinn Umhverfisfyrirtæki ársins en næsta fimmtudag verður ljóstrað upp um hvaða fyrirtæki keppa um titilinn.

Umhverfisdagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, SVÞ, SFS, SFF og Samorku.

Nánari upplýsingar og skráning
 

Sjáumst á miðvikudaginn!

 

7. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja verður gefin út þann 21. október næstkomandi. Af því tilefni efna útgáfuaðilar, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, til útgáfuviðburðar í Háteigi, Grand Hótel Reykjavík, kl. 16:00.

  • Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, opnar fundinn
  • Lísbet Sigurðardóttir, verkefnastjóri útgáfunnar kynnir helstu breytingar á leiðbeiningunum.
  • Marta Guðrún Blöndal. lögmaður, stjórnarmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti flytur erindi.
  • Pallborðsumræður: Heiðar Guðjónsson stjórnarformaður Íslandsbanka, Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, Rut Gunnarsdóttir verkefnastjóri hjá KPMG og Þóranna Jónsdóttir formaður nefndar um stjórnarhætti. Baldur Thorlacius framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland stýrir umræðum.

Boðið verður upp á léttar veitingar og tengslamyndun að fundi loknum.

Viðburðurinn er opinn öllum en skráning nauðsynleg.

 

Skráðu þig hér
 

Fjárlagafrumvarpið fellur á hagvaxtarprófinu

 

„Verkefni stjórnvalda í efnahagsmálum er tvíþætt: að stuðla að stöðugleika og styðja við hagvöxt. Þó gert sé ráð fyrir hallaleysi byggir frumvarpið á bjartsýnum forsendum og fellur á hagvaxtarprófinu. Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að verðmætin sem standa undir samneyslunni verða til í atvinnulífinu. Það eru fyrirtæki landsins sem skapa störfin, greiða launin og standa undir skatttekjunum. Af þeim sökum er mikilvægt að hið opinbera taki ekki til sín of mikið súrefni frá atvinnulífinu,“ segir í umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.

Lestu umsögnina á vef SA
 

SA og Júní smíða nýjan vef

 

Samtök atvinnulífsins hafa gert samning við Júní um hönnun og þróun nýrrar vefsíðu samtakanna. Áhersla verður lögð á bætta þjónustu við aðildarfyrirtæki, einfaldara aðgengi að upplýsingum og öflugri leit. Ráðgert er að vefurinn fari í loftið fyrir miðjan febrúar 2027.

„Fólk sem rekur fyrirtæki þarf greiðan aðgang að áreiðanlegum upplýsingum og góðri ráðgjöf. Með nýjum vef viljum við auðvelda aðildarfyrirtækjum okkar að finna svör og nýta sér þjónustu samtakanna. Markmiðið er einfalt: Að spara þeim tíma og veita enn betri stuðning við daglegan rekstur,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Lestu fréttina á vef SA
 

Meiri innheimta en minni framlög

 

Nýr skattur til uppbyggingar en minni framlög til ferðamannastaða. Þetta er mótsögnin sem SA benda á í umsögn um fyrirhugað náttúru- og innviðagjald. Ferðaþjónustan greiðir þegar milljarða í sértæka skatta en nú á að bæta við 4.500 króna gjaldi án þess að tekjurnar verði eyrnamerktar uppbyggingu. Á sama tíma eiga framlög til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða að lækka. SA telja að fyrst þurfi að tryggja að núverandi gjöld nýtist í yfirlýstum tilgangi.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Greiðum leið sérhæfðs starfsfólks

 

Í umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum atvinnuréttindi útlendinga (dvalarleyfi) árétta samtökin „mikilvægi þess að lög um útlendinga styðji við samkeppnishæfni fyrirtækja sem keppa um starfsfólk í alþjóðlegu starfsumhverfi og að forgangsröðun umsókna vegna atvinnuþátttöku verði tryggð. Það er nauðsynlegt að fyrirtækjum sé kleift að taka vel á móti erlendu starfsfólki sem þjóðfélagið mun þurfa á að halda næstu ár og áratugi ef standa á undir hagvexti og bættum lífskjörum á Íslandi til framtíðar.“

Lestu umsögnina á vef SA
 

Nýtum færnina, byggjum á reynslunni

 

SA, ASÍ og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins fagna tillögu að framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda en kalla eftir skýrari verkaskiptingu í sameiginlegri umsögn. Byggja þurfi á reynslu og verkfærum framhaldsfræðslunnar við íslenskukennslu, ráðgjöf og mat á færni. Árið 2025 voru 56% þátttakenda í námi á vegum framhaldsfræðslunnar erlendir ríkisborgarar. Aðilarnir leggja sérstaka áherslu á að efla raunfærnimat fyrir innflytjendur með viðbótarfjármagni og tryggja að niðurstöður þess nýtist til áframhaldandi náms og starfsþróunar.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Tímabært frumvarp er fyrsta skrefið

 

Flókið regluverk og tafsöm málsmeðferð standa húsnæðisuppbyggingu fyrir þrifum. SA styðja frumvarpsdrög um einfaldari, hraðari og fyrirsjáanlegri málsmeðferð í skipulagsmálum og hvetja til þess að frumvarpið verði lagt fram sem fyrst. Í umsögninni leggja samtökin til að svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins verði sett skýr tímamörk til að taka afstöðu til beiðna um breytingar. Frumvarpið sé þó aðeins fyrsta skrefið. Ríki og sveitarfélög þurfi einnig að tryggja stöðugt framboð byggingarhæfra lóða og draga úr óþarfa kostnaði við uppbyggingu.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Hærri skattar, betri heilsa?

 

SA og SVÞ leggjast gegn auknum álögum á matvæli í sameiginlegri umsögn um aðgerðaráætlun í málefnum offitu. Samtökin vara við hærra matvælaverði og flóknara skattkerfi sem bitni verst á tekjulægri heimilum, án þess að ávinningur sé nægilega tryggður. Þau kalla eftir jákvæðum hvötum og samstarfi stjórnvalda og atvinnulífs um hollari neysluvenjur. Árangur aðgerðanna þurfi jafnframt að mæla í raunverulegum framförum, fremur en því hvort áætlanir hafi verið samdar eða málstofur haldnar.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur

 
 
Sjá nánar

Vorskýrsla KTN 2026
 

Sjá nánar
 
 
 

Fræðsla um EKKO mál

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe