Mánudagsmolar 28. september | Ársfundur atvinnulífsins er á fimmtudag | Kjaramál voru til umræðu í Pallborðinu á Vísi | Vinnumarkaður og kjaradeilur í Dagmálum | Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026

No images? Click here

Ársfundur atvinnulífsins er á fimmtudag

 

Umræðan um kjarasamninga sýnir að við þurfum að ræða meira en næstu launahækkun. Hvernig byggjum við vinnumarkaðslíkan sem stuðlar að stöðugleika, lægri verðbólgu og varanlegum kaupmætti?

Á Ársfundi atvinnulífsins 1. október verður þessi spurning í brennidepli ásamt umræðum um samkeppnishæfni Íslands. Hvað þarf að breytast og hvernig sækjum við fram.

Dagskrá fundarins:

  • Ávarp: Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. 
  • Ávarp: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. 
  • Pallborðsumræður: Hvað þarf til að sækja fram?  
    Þátttakendur í pallborði: Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, Skúli Mogensen, frumkvöðull, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku. Stjórnandi: Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs SA.  
  • Ávarp: Rannveig Rist, fyrrverandi forstjóri Rio Tinto á Íslandi. 
  • Pallborðsumræður: Hvernig rjúfum við vítahringinn? 
    Þátttakendur í pallborði: Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og fyrrverandi ríkissáttasemjari, Gylfi Jónu Arnbjarnarson, ráðgjafi og fyrrverandi forseti ASÍ, og Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA. Stjórnandi: Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. 
  • Sækjum fram: Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA. 

Að fundi loknum bjóða Samtök atvinnulífsins til móttöku í Björtu loftum í Hörpu þar sem verða léttar veitingar og ljúfir tónar.

Skráðu þig á Ársfund atvinnulífsins
 

Kjaramál voru til umræðu í Pallborðinu á Vísi

 

Síðastliðinn fimmtudag mættust Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í Pallborðinu á Vísi og ræddu kjaramál og stöðuna í ljósi forsendubrests kjarasamninga. 

„Það boðar ekki gott þegar stjórnvöld eru að koma með tugmilljarða skattahækkanir inn í þessa stöðu eins og fjárlagafrumvarpið boðar. Þetta er bara alls ekki nógu góð staða og það er okkar sameiginlega verkefni að vinna það nú út úr þessu að við fáum lendingu sem er þolanleg,“ sagði Bjarni.

Horfðu á pallborðið hér
 

Vinnumarkaður og kjaradeilur í Dagmálum 

 

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, ræddu um efnahagsþrengingar, þráláta verðbólgu, háa vexti og mögulegan óróa á vinnumarkaði í Dagmálum, frétta- og dægurmálaþætti Morgunblaðsins. 

Horfðu á þáttinn hér
 

Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026

 
Tilnefndu Umhverfisfyrirtæki ársins 2026

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand frá kl. 13:00–15:15 og verður skráning auglýst fljótlega.

Búið er að opna fyrir tilnefningar til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfis- og loftslagsmálum og sýnir í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun.

Frestur til að senda inn tilnefningu er til og með 10. október næstkomandi.

 

Hefur þú svarað könnuninni um umhverfismál og alþjóðaviðskipti?

SA og aðildarsamtök standa nú fyrir könnun meðal fyrirtækja um umhverfismál og alþjóðaviðskipti. Könnunin hefur verið send í tölvupósti til félagsmanna og hvetjum við þau sem hafa fengið hana til að gefa sér nokkrar mínútur til að svara.

Góð þátttaka skiptir máli svo niðurstöðurnar gefi sem skýrasta mynd af stöðu og sjónarmiðum íslensks atvinnulífs. Niðurstöðurnar verða nýttar beint í hagsmunagæslu SA og aðildarsamtaka, meðal annars í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins 27. október.

Hluti könnunarinnar um alþjóðaviðskipti er hluti af sameiginlegu norrænu verkefni um reynslu fyrirtækja af norrænum mörkuðum og innri markaði ESB. Svörin nýtast til að kortleggja hindranir og stuðla að betri virkni þessara markaða.

Könnunin er framkvæmd af Gallup og farið verður með öll svör sem trúnaðarmál.

 

Vel heppnað málþing um örvottanir

 

Maj-Britt Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði og sérfræðingur í menntamálum hjá SA, hélt erindi og tók þátt í pallborðsumræðum á málþingi MCEU um örvottanir sem haldið var í Sant Pol á Spáni þann 21. september síðastliðinn.

Lestu fréttina hér
 

Taktu daginn frá!

 

Ný útgáfa af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja verður kynnt í húsakynnum Nasdaq á Íslandi, Laugavegi 182, þann 21. október kl. 16:00.

Nánari dagskrá verður kynnt fljótlega.

Skráðu þig hér
 

Ræktum vitið

 

Ræktum vitið er samstarfsverkefni SVÞ, VR og LÍV sem hvetur til sí- og endurmenntunar í verslun og þjónustu. Í október köllum við til sérstaks átaks þar sem fyrirtæki og starfsfólk eru hvött til að taka þátt, læra eitthvað nýtt og skrá hvert skref í starfstengdri þekkingaröflun á raektumvitid.is/atak. 

Skráðu þig og fyrirtæki þitt til leiks
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
 
Sjá nánar

Vorskýrsla KTN 2026
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe