|
Mánudagsmolar No images? Click here Gleðileg jól!
Daginn er aftur tekið að lengja og jólahátíðin handan við hornið. Við hjá Samtökum atvinnulífsins óskum þér og þínum gleðilegra jóla.
Verðbólga ekki mælst hærri síðan í janúar „Það er í rauninni þrennt sem stjórnvöld eru að gera sem er ekki að hjálpa til. Það eru þessar skattahækkanir, það er útgjaldaaukning og svo sjáum við það að launavísitala opinberra starfsmanna er að hækka talsvert meira en launavísitala á almennum markaði,“ segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA og forstöðumaður efnahagssviðs við Morgunblaðið í tilefni af nýrri verðbólgumælingu sem sýnir verulega hækkun. Mikilvægt skref í rétta átt
ASÍ, SA og fjármála- og efnahagsráðherra undirrituðu samkomulag í síðustu viku sem markar mikilvægt skref í átt að varanlegri lausn á jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða og úrbótum á samspili almannatrygginga og lífeyrissjóða. „Nú skiptir máli að fylgja yfirlýsingunni eftir með skýrri verkefnaáætlun og markvissri framkvæmd,“ sagði Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, við það tækifæri. Börnin borga brúsann
„Vandséð er hvernig standa á undir umfangsmiklum velferðarkerfum án þess að hugað sé í auknum mæli að stöðu þeirra sem munu fjármagna kerfin til framtíðar,“ segir í Endahnúti Önnu Hrefnu, aðstoðarframkvæmdstjóra. Óskað eftir tilefningum til Menntaverðlauna atvinnulífsins
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica 11. febrúar 2026. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki ársins og menntasproti ársins. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. Kaupgjaldsskrá nr. 32 er aðgengileg á vef SA Kaupgjaldsskrá nr. 32 er aðgengileg á vef Samtaka atvinnulífsins. Í kaupgjaldsskrá SA eru umsamdir kauptaxtar í almennum kjarasamningum SA við landssambönd og landsfélög ASÍ. Einnig upplýsingar um reiknitölur, fatapeninga, verkfæragjald, fæðisgjald og aðra kjaratengda þætti kjarasamninga. Kaupgjaldsskrá nr. 32. gildir frá 1. janúar 2026.
Samfélagsmiðlar SA eru iðandi af lífi
Á Facebook, Instagram og LinkedIn geturðu fylgst með starfi Samtaka atvinnulífsins, viðburðum, skrifum og umsögnum. Nýtt efni á miðlunum er meðal annars fjöldi mynda frá Umhverfisdegi atvinnulífsins. Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |