|
Mánudagsmolar No images? Click here Jákvætt innlegg í baráttuna gegn verðbólgu
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, fagnaði þeim tímabundnu aðgerðum sem ríkisstjórnin lýsti yfir á föstudag en setti spurningamerki við lögbundið eftirlit með fyrirtækjum. „Að sjálfsögðu munu fyrirtækin skila lækkun virðisaukaskattsins út í eldsneytis lítraverðið, það þarf ekkert að hafa áhyggjur af því. En að það þurfi sérstakt lögbundið eftirlit með því er eitthvað sem maður staldrar við,“ sagði Bjarni. Hann benti á að best hefði verið að ríkisstjórnin hefði byrjað heima hjá sér. „Þetta innlegg kemur í framhaldi af því að þessi sömu stjórnvöld þau hækkuðu eldsneytis lítrann með tuttugu og fimm prósent hækkun kolefnisgjalds um áramótin, hækkun vörugjalda um áramótin. Hækkun skatta á leigutekjur um áramótin munu smám saman seytla út í leiguverð og síðan hækkuðu gjaldskrár ríkisins sömuleiðis um 3,7% um áramótin og auðvitað haft áhrif í hina áttina, en þetta er gott skref engu að síður.“
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn 13. maí í Húsi atvinnulífsins
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 13. maí næstkomandi klukkan 11:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf. Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur allra aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins. Eyjastefna ESB þarf að taka mið af landfræðilegum veruleika
Samtök atvinnulífsins, ásamt SVÞ - Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustunnar og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, hafa skilað umsögn til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um mótun nýrrar stefnu fyrir eyjar. Í umsögninni er lögð áhersla á að Ísland, sem aðili að EES og hluti af innri markaði Evrópu, gegni mikilvægu hlutverki í virðiskeðjum, tengingum og afhendingaröryggi. Nauðsynlegt sé að stefna ESB taki mið af framlagi allra ríkja á innri markaðnum, þar með talið EES/EFTA-ríkja, og styðji samkeppnishæfni og viðnámsþrótt.
Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu
„Traust aðgengi að orku er ein af grunnstoðum samfélagsins og forsenda þess að daglegt líf fólks og fyrirtækja gangi eðlilega. Óveðrið sem gekk yfir landið annan í páskum var skýr áminning um hversu viðkvæmt raforkukerfið getur verið. Það undirstrikar það sem atvinnulífið hefur lengi bent á - að orkuöryggi skiptir sköpum fyrir verðmætasköpun, samkeppnishæfni og stöðugleika í samfélaginu. Elding sem sló niður í flutningskerfi raforku olli víðtæku rafmagnsleysi á sunnanverðu landinu, þar á meðal á Keflavíkurflugvelli sem þurfti að reiða sig á varaafl. Áhrifin náðu einnig til þéttbýlissvæða þar sem rafmagnslaust var klukkustundum saman og truflanir urðu á grunnþjónustu sem samfélagið byggir á. Þótt varnarkerfi hafi virkað sem skyldi sýnir atburðarásin hversu mikið er undir þegar raforkan bregst,“ segir í grein Hugrúnar Elvarsdóttur, verkefnastjóra á málefnasviði Samtaka atvinnulífsins, og Katrínar Helgu Hallgrímsdóttur, lögfræðings Samorku, sem birtist á Vísi í síðustu viku. Varað við auknum ríkisafskiptum
Í umsögn SA um frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga leggja samtökin áherslu á mikilvægi sjálfstæðis sveitarfélaga sem verndað er í stjórnarskrá. Þau vara við breytingum sem kunna að auka inngrip ríkisvaldsins í málefni sveitarfélaga og telja að gæta verði meðalhófs í slíkum heimildum. Öll samtöl skipta máli
„Staðan hefur versnað töluvert og það er fullt tilefni til þess að hafa áhyggjur af því sem er að gerast,“ sagði Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, í viðtali við Morgunblaðið í byrjun síðustu viku, þar sem fjallað var um þróun verðbólgu og áhrif hennar á endurskoðun kjarasamninga í haust. „Við trúum því að öll samtöl núna geti skipt máli til að fá farsæla niðurstöðu fyrir þjóðarbúið.“ Heimildir gætu falið í sér inngrip í atvinnufrelsi
Í umsögn SA um frumvarp stjórnvalda sem ætlað er að bæta viðbrögð við lyfjaskorti er bent á að frumvarpið feli í sér víðtækar heimildir fyrir Lyfjastofnun til að stýra og takmarka afgreiðslu og afhendingu lyfja. Slíkar heimildir geti falið í sér umfangsmikið inngrip í atvinnufrelsi fyrirtækja á lyfjamarkaði, sem nýtur verndar samkvæmt stjórnarskrá. Því sé nauðsynlegt að rökstyðja heimildarákvæði betur og afmarka þau skýrar þannig að ekki sé gengið lengra en almannahagsmunir krefjast. Breytingarnar muni hafa jákvæð efnahagsleg áhrif
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um áform stjórnvalda um lagasetningu sem miðar að því að flýta uppbyggingu raforkuinnviða og einfalda regluverk. Í umsögninni lýsa samtökin yfir skýrum stuðningi við áformin og telja þau bæði tímabær og nauðsynleg í ljósi þeirra tafa sem orðið hafa í uppbyggingu flutnings- og dreifikerfa raforku á undanförnum árum. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |