Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Stöðugleikarnir Stöðugleiki kemur ekki af sjálfu sér Verkefnið er ekki búið Leiðin að verðstöðugleika og bættum lífskjörum var mörkuð af Samtökum atvinnulífsins á haustmánuðum 2023 í samtali við atvinnulíf og almenning. Í kjölfarið sýndu aðilar vinnumarkaðarins samhug og einurð í vinnu sinni við gerð stefnumarkandi langtímasamninga. Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika. Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta. Á þessum grunni hefja Samtök atvinnulífsins eftirfylgni við kjarasamninga undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir. Stöðugleikarnir fara fram með hækkandi sól og samanstanda af opnum fundum fyrir atvinnulíf, stjórnvöld og almenning, viðtalsþáttum um atvinnulífið og fjölbreyttu miðlunarefni og samtali. Þá verður bætt í upplýsingagjöf til aðildarfyrirtækja SA um tæknileg útfærsluatriði kjarasamninganna. Sofnum ekki á verðinum. Verkefnið er ekki búið. Verum samtaka um aukna hagsæld. Taktu daginn frá: Akureyri - 29. apríl: Stöðugleikarnir á Akureyri. Opinn samtalsfundur með atvinnulífinu, sveitarstjórn og fulltrúum stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Öll velkomin. Súpa og nýbakað brauð í boði. Reykjavík - 30. apríl: Stöðugleikarnir í Reykjavík. Opinn samtalsfundur með atvinnulífinu, sveitarstjórn og fulltrúum stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Öll velkomin. Súpa og nýbakað brauð í boði. Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 15. maí Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 15. maí næstkomandi klukkan 12:00 í Húsi atvinnulífsins. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður meðal annars frá kjöri formanns Samtaka atvinnulífsins og stjórnar SA 2023-2024. Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka. Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fara fulltrúar í fulltrúaráði með atkvæðarétt. Aðrir sálmar Staðan í orkumálum - Guðlaugur Þór
|