|
No images? Click here Minnisblað um aðildarviðræður unnið fyrir SA
Samtök atvinnulífsins fengu Óttar Pálsson hrl. hjá LOGOS og Stefán Má Stefánsson, prófessor emeritus, til að taka saman hlutlægt minnisblað um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í minnisblaðinu er meðal annars fjallað um hvað er raunverulega samningsatriði í slíkum viðræðum, mögulegar undanþágur og aðlaganir, áhrif einróma samþykkis 27 aðildarríkja, tímalengd ferlisins og aðkomu Alþingis. Þá er sérstaklega fjallað um hvað endurupptaka viðræðna myndi þýða fyrir Ísland. Ályktun stjórnar SA um stöðuna á vinnumarkaði „Stjórn Samtaka atvinnulífsins kallar eftir því að stjórnvöld axli sína ábyrgð á stöðugleika og samkeppnishæfni og breyti um kúrs. Samtökin eru reiðubúin til samtals við stjórnvöld og verkalýðshreyfinguna um aðgerðir sem ná niður verðbólgu og vöxtum, styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins og leggja þannig grundvöll að nýju vaxtarskeiði. Áður en hægt er að skipta verðmætum þarf að skapa þau.“ segir í ályktun stjórnar Samtaka atvinnulífsins frá 18. ágúst síðastliðnum. Átján fyrirtæki fengu viðurkenningu fyrir stjórnarhætti
Átján íslensk fyrirtæki hlutu á fimmtudag nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025-2026. Voru viðurkenningarnar afhentar við hátíðlega athöfn á Nauthóli. Það eru Stjórnvísi, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Nasdaq Íslands standa að viðurkenningunum. „Megum ekki fá á okkur fleiri mörk í þessari stöðu“
„Stóru vonbrigðin eru þau að við höfum tapað núna heilu ári í baráttunni við verðbólguna. Við erum bæði komin með ítrekaðar vaxtahækkanir og erum komin í þá stöðu að forsenduákvæði kjarasamninga virkjast og það þarf að fara yfir það hvort það kalli á viðbrögð og hvers konar viðbrögð þá,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið í tilefni af hækkun stýrivaxta. Svigrúm til að sækja fram
„Í millitíðinni hefur eitt og annað gerst. Meðal annars höfum við búið til verðbólgu með vörugjaldahækkunum og gjaldskrárbreytingum og ef við tökum bara til hliðar áhrif af slíkum aðgerðum þá munar þannig um þær að þær setja kjarasamningana í þá stöðu að forsenduákvæðið virkjast,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í Vikulokunum á RÚV á laugardag. Bjarni kallaði eftir svigrúmi fyrir fyrirtæki til að sækja fram. Opið fyrir skráningu á Ársfund atvinnulífsins 1. október Ársfundur atvinnulífsins verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 1. október undir yfirskriftinni Við sækjum fram. Ársfundurinn er einn stærsti vettvangur landsins fyrir samtal atvinnulífs, stjórnvalda og annarra lykilhagaðila um stöðu efnahagsmála og framtíð íslensks samfélags. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu verða kynntar bráðlega. Þangað til hvetjum við félagsmenn og aðra áhugasama til að taka daginn frá. Rjúfum vítahringinn: Fyrirlestur frá Hringferð
Fyrirlesturinn sem Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins, hélt á Hringferð SA, Rjúfum vítahringinn, er nú aðgengilegur á vef SA. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |