Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Friður ríkir á vinnumarkaði Friður ríkir á vinnumarkaði í kjölfar undirritunar Stöðugleikasamnings á milli Samtaka atvinnulífsins og VR/LÍV. Með undirritun samningsins hefur SA samið til fjögurra ára við stærstu félögin á almennum vinnumarkaði, sem samanstanda af um 110 þúsund manns, en líkt og kunnugt er undirrituðu SGS, Efling, Samiðn og Fagfélögin Stöðugleikasamninginn fyrr í mánuðinum. „Það er afar ánægjulegt að semja um stöðugleika og ná sátt við eitt stærsta stéttarfélag á almennum vinnumarkaði í dag. Það skapar óneitanlega skriðþunga fyrir það sem á eftir kemur, þar sem við sem þjóð stöndum frammi fyrir raunverulegu tækifæri til þess að ná efnahagslegum stöðugleika,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA. Atkvæðagreiðsla um samninginn stendur nú yfir og lýkur klukkan 12 á hádegi miðvikudaginn 20. mars. Allt um Stöðugleikasamninginn hér Allar upplýsingar um Stöðugleikasamninginn og svör við algengum spurningum má nálgast á Vinnumarkaðsvefnum. Aðrir sálmar Sjálfbærnidagur atvinnulífsins á morgun Samtök atvinnulífsins og Deloitte á Íslandi halda árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins á morgun, þriðjudaginn 19. mars. Þar býðst fyrirtækjum að sækja sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni. Aðalfyrirlesari dagsins er Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndunum og meðeigandi. Í kjölfar sameiginlegrar dagskrár verður boðið upp á vinnustofu fyrir leiðtoga fjármála og sjálfbærni þar sem við heyrum reynslusögur fyrirtækja af EU Taxonomy og eigum gagnlegar samræður. Æskileg breyting á fjárfestingarheimildum Samtök atvinnulífsins skiluðu ásamt Alþýðusambandi Íslands inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða, sem geri þeim kleift að fjárfesta hluta eignasafns sína í ákveðnum óskráðum fjármálagerningum sem hafi það að að meginstarfsemi að leigja út íbúðarhúsnæði til einstaklinga. „ASÍ og SA telja aftur á móti æskilegt að breyting verði gerð á frumvarpi þessu þar sem mælt verði fyrir um nýtt hámark á eignarhlut hvers lífeyrissjóðs í stað núverandi fimmtungshlutar. Hámark á eignarhlut tryggir bæði fjarlægð og sjálfstæði stjórnar þess félags sem fjárfest er í, ásamt því að tryggja betra jafnvægi í eigendahópi þess.“ Molinn „Það eru margar og mismunandi ástæður fyrir því að stofnanir og vinnustaðir ættu að vilja tryggja það að starfsfólk þeirra fái að heyra um kosti fjölbreytileika og fræðslu sem miðar að því að vinna gegn hvers kyns mismunun, fordómum og rasisma.“ -Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi forstöðumaður Fjölmenningarseturs |