|
Mánudagsmolar No images? Click here Skráning hafin á Menntadag atvinnulífsins
Skráning á Menntadag atvinnulífsins 11. febrúar er hafin. Dagurinn er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar. Við lofum fjölbreyttri og kraftmikilli dagskrá en hún verður kynnt á næstu dögum. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. Könnun í tengslum við Menntadaginn hefur verið send út
Við hvetjum alla þá sem fengið hafa til sín könnun í tengslum við Menntadag atvinnulífsins að taka þátt. Könnunin er brýnn þáttur í að meta stöðuna og mikilvægt verkfæri í hagsmunagæslu samtakanna í Húsi atvinnulífsins. Frestur til að tilnefna til Menntaverðlauna atvinnulífsins rennur út miðvikudag!
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica 11. febrúar 2026. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki ársins og menntasproti ársins. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. Stjórnvöld verði að nýta svigrúm til frekari greininga
Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu hafa sent umsögn um áform um innleiðingu reglugerðar ESB um FuelEU Maritime. Samtökin styðja markmið um orkuskipti og minni losun í sjóflutningum, en leggja ríka áherslu á að innleiðing fari ekki fram fyrr en reglugerðin hefur verið tekin upp í EES-samninginn. Þá telja samtökin að áhrif á íslenskt atvinnulíf, samkeppni, verðlag og hagkerfið í heild hafi ekki verið greind með fullnægjandi hætti. Lagt er til að stjórnvöld nýti svigrúm til frekari greiningar og sæki nauðsynlegar aðlaganir vegna séríslenskra aðstæðna, í samræmi við reglugerðina sjálfa. Vatn og vindur - auðlindagjöld á Skattadeginum
Á Skattadegi Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs og Deloitte sem fram fór í Hörpu í liðinni viku flutti Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði samtakanna, erindi um auðlindagjöld. Fór Arnar yfir hvernig við höfum notað hinar ýmsu auðlindir frá landnámi og hvernig Íslendingar gripu tækifærin – þjóðinni allri til góðs. Í erindinu var einnig farið yfir mikilvægi þess að skattaframkvæmd sé góð þegar tryggja á hámarks ávinning þjóðarinnar af nýtingu auðlinda. Menntatorg atvinnulífsins - Tækifæri fyrir fyrirtækið þitt?
Skapti Örn ræðir við forseta Íslands á Menntadegi atvinnulífsins 2025 Á Menntadegi atvinnulífsins verður sérstakt markaðstorg þar sem fjölbreytt fyrirtæki geta miðlað árangri eða þjónustu sinni í fræðslu- og menntamálum fyrir gestum dagsins. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar. Hvað er boðið upp á?
Takmarkað pláss er í boði – við hvetjum áhugasöm fyrirtæki til þess að sækja um. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |