Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Samhugur um mikilvægasta verkefnið Á milli jóla og nýárs tóku Samtök atvinnulífsins og breiðfylking landssambanda og stærstu stéttarfélaga á almenna vinnumarkaðinum höndum saman um gerð langtímakjarasamninga sem auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Upplýsingafundur um gang kjaraviðræðna Upplýsingafundur um gang kjaraviðræðna verður haldinn föstudaginn 12. janúar klukkan 12:30. Í beinu framhaldi, eða um 13:00, hefst stutt yfirferð á vinnutímastyttingu samkvæmt kjarasamningum iðnaðarmanna sem tekur gildi 1. febrúar n.k. Fundurinn fer fram á Zoom. Stjórn SA skorar á fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélögÁ fundi sínum þann 29. desember samþykkti stjórn Samtaka atvinnulífsins áskorun til aðildarfélaga sinna, annarra fyrirtækja landsins, ríkis og sveitarfélaga um að styðja við sameiginleg samningsmarkmið nýrra kjarasamninga með því að halda aftur af verðhækkunum og launaskriði, eins og þeim frekast er unnt. „Samningsaðilar eru sammála um að mikilvægasta verkefnið í komandi kjaraviðræðum sé að greiða leið kjarasamninga sem vinna gegn þeirri miklu verðbólgu og háu vaxtastigi sem komið hafa hart niður á bæði heimilum og fyrirtækjum.“ Skattadagurinn 2024 Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins fer fram næstkomandi fimmtudag, þann 11. janúar, klukkan 8:30-10:00 í Silfurbergi, Hörpu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá klukkan 8:00. Verð er 3.900 kr.
Aðrir sálmar Tímamótaárið 2024 Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, fjallaði um kjarasamninga og orkumál í Morgunblaðinu í lok árs. „Sú staða sem nú er komin upp, þar sem skammta þarf orku og fyrirtæki þurfa að grípa til þess ráðs að brenna olíu til að halda starfsemi sinni gangandi, er fullkomlega óviðunandi.“ Áramótaheit með viti „Sérstök áhersla á hækkun lægstu launa, oft útfærð sem „krónutöluhækkun“, er vel skiljanleg í samfélagi sem leggur áherslu á jöfnuð.“ -Sigríður Margrét fjallaði um stöðugleika í Morgunblaðinu í liðinni viku. |