Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Sjónarmið vegna greiningar SamkeppniseftirlitsinsSamkeppniseftirlitið komst nýlega að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki á íslenskum dagvörumarkaði væru að skila óeðlilega hárri framlegð í núverandi efnahagsástandi. Aftur á móti er greining Samkeppniseftirlitsins haldin ágöllum sem leiða til þess að ályktanir stofnunarinnar eiga í ýmsu tilliti ekki við rök að styðjast. Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu hafa tekið saman athugasemdir sínar við áðurnefnda greiningu Samkeppniseftirlitsins. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í Sprengisandi á Bylgjunni í gær: „Greining Samkeppniseftirlitsins sem kom út á dögunum talaði um að framlegð í krónum talið hefði aukist. Það er alls ekki skrýtið þegar öll eftirspurn heimilanna leitaði inn á við í stað þess að leita til útlanda í gegnum Covid. En það lýsir einungis auknum umsvifum, ekki því að álagning hafi aukist og hagnaðurinn er ekki að aukast – framlegðin og hagnaðurinn hefur einmitt verið að minnka. Mér finnst umræðan um þetta oft vera á villigötum." Aðrir sálmarVottun verði valkvæð„Lögfesting jafnlaunastaðals hefur lítil sem engin áhrif á launamun kynjanna, enda stafar hann að mestu leyti af kynskiptum vinnumarkaði.“ - Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, skrifar um jafnlaunastaðal. |