Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Upplýsingafundur SA Upplýsingafundur Samtaka atvinnulífsins vegna stöðu mála í kjaraviðræðum SA og stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði verður haldinn með fjarfundarbúnaði þriðjudaginn 13. febrúar kl. 15:00. Forsvarsmenn aðildarfyrirtækja SA hafa fengið póst með skráningarhlekk inn á fundinn en fundurinn er einungis ætlaður aðildarfyrirtækjum SA. Hafi póstur ekki borist með skráningarhlekk má hafa samband við skrifstofuumsjón á netfangið: sigridur@sa.is eða í síma 591 0000. Viðræðuslit en ekki öll nótt úti Viðsemjendur SA, breiðfylking SGS, Eflingar, VR/LÍV og Samiðnar, slitu viðræðum í Karphúsinu á föstudaginn var. Ásteytingarefnið var dregið fram í fjölmiðlum sem forsenduákvæði samningsins. Látið var að því liggja að SA hafi ekki viljað slík ákvæði í langtímasamninginn og að hugur fylgdi ekki máli með markmið kjarasamninganna. Það er enn sem áður sameiginlegt hagsmunamál íslensks atvinnulífs og heimilanna að verðbólgan hjaðni og vextir lækki. Ágreiningurinn snýr að réttu leiðinni að þeim markmiðum. Forsenduákvæði sannarlega á borðinu Samtök atvinnulífsins hafa alltaf verið skýr með þá afstöðu að eðlilegt sé að forsenduákvæði séu til staðar í langtímakjarasamningum og lögðu t.a.m. til endurskoðunarákvæði á árum tvö og þrjú. Á meðal tillagna að efnahagslega skynsamlegum forsenduákvæðum var:
Það er því rangt sem haldið hefur verið fram að SA hafi ekki viljað fallast á forsenduákvæði í samningnum. Hins vegar skiptir höfuðmáli hvernig slík ákvæði eru útfærð. Samtalið er enn opið af hálfu SA Mikið virði er falið í þeim stöðugleika sem fylgir langtímakjarasamningum. Samtök atvinnulífsins eru reiðubúin sem fyrr að halda samtalinu áfram. Markmiðið er áfram að stuðla að aukinni sátt og móta heildstæða launastefnu sem skapar skilyrði fyrir minni verðbólgu og lægri vexti. Það verkefni fer ekki frá okkur. Menntadagur atvinnulífsins fer Fundurinn er haldinn í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar kl. 09:00 - 10:30. Yfirskrift menntadagsins í ár er Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins? Á fundinum kynnum við uppfærðar niðurstöður könnunar Gallup á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar. Rödd atvinnulífsins fær að heyrast sem fyrr og ráðherrar málaflokksins mæta í umræður þar sem færniþörf er í brennidepli. Þá verða hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt af forseta Íslands.
|