Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Fundað stíft í Karphúsinu Samtök atvinnulífsins og breiðfylking stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði hafa fundað stíft undanfarna daga. Góður gangur er í viðræðunum sem stóðu yfir alla helgina. Síðdegis í dag mun SA svo funda með samninganefnd VR og LÍV. Það er fyrsti fundur SA með þeim síðan VR sagði sig frá breiðfylkingunni. Við stöndum vaktina Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu aðildar-fyrirtækja þannig að framleiðni og verðmætasköpun þeirra geti aukist. Horft til styrkleika frekar en veikleika Á meðal umsagna sem SA skiluðu í liðinni viku var umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga. „SA leggja áherslu á að auka virkni einstaklinga sem glíma við skerta starfsgetu og að horft sé frekar til styrkleika einstaklingsins en veikleika en samtökin voru meðal stofnaðila VIRK – starfsendurhæfingarsjóðs árið 2008 sem starfar eftir þeirri hugmyndafræði.“ Aðgerðir gegn gullhúðun Samtök atvinnulífsins fagna mjög skipun starfshóps um aðgerðir gegn gullhúðun og að kallað sé eftir ábendingum um tilvik þar sem henni hefur verið beitt. „SA hafa í gegnum tíðina lagt mikla áherslu á að Evrópureglur séu ekki innleiddar á Íslandi með meira íþyngjandi hætti en gert í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Jafnframt hafa samtökin bent á að ef ákveðið er að setja séríslenskar reglur við innleiðingu Evrópureglna eða að ívilnandi undanþágur ekki nýttar ættu stjórnvöld að rökstyðja það sérstaklega. Þetta hefur ekki verið raunin.“ Molinn Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson „Að fenginni reynslu hljóta menn að vera sammála um, að það eigi að vera hlutverk framkvæmda- og löggjafarvaldsins að móta almenna umgjörð fyrir efnahagslífið, sem aðilar vinnumarkaðar taka mið af við gerð kjarasamninga, og því stöðugri sem sú umgjörð er, þeim mun varanlegri kjarasamninga á að vera unnt að gera, sem aftur styður við stöðuga stjórn efnahagsmála.“ -Ingimundur Sigurpálsson, fyrrverandi formaður SA, á aðalfundi 2004. |