|
Mánudagsmolar No images? Click here Ekki úr lausu lofti gripinn, Daði
„„Mér finnst nú rétt að halda til haga nokkrum hlutum. Við þurfum að bera saman hverjar þessar bætur eru í dag og lágmarkslaun, og þar munar ennþá auðvitað mjög miklu. Menn geta haft ýmsar skoðanir á því hversu miklu á að muna, en allar áhyggjur af því að hvatinn til að vera á vinnumarkaði sé ekki til staðar er úr lausu lofti gripinn.“ Þessi orð fjármála- og efnahagsráðherra sem jafnan er vandur virðingu sinni og stígur varlega til jarðar í opinberri umræðu, eru staðleysa og það sem verra er að ráðherra veit betur. Það er ástæða til að hafa áhyggjur,“ segir Ísak Einar Rúnarsson, forstöðumaður málefnasviðs SA, í grein á vef samtakanna.
Fyrirhugaðar breytingar fagnaðarefni
„Breytingarnar eru djarfar en afar jákvæðar. Einföldun og aukin skilvirkni eru stórt skref til að bæta samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. SA leggja þó áherslu á að markmið um einföldun verði að veruleika og að eftirlit tveggja stofnana leiði ekki til aukins flækjustigs í ákveðnum tilvikum,“ segir í umsögn SA um frumvarp um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum sem birt var á Samráðsgátt stjórnvalda 26. janúar. Markmið frumvarpsins er að auka samræmi, einfalda fyrirkomulag og bæta skilvirkni eftirlits. „Óvissa er alltaf slæm fyrir verðmætasköpun“
„Óvissa er alltaf slæm fyrir viðskipti, óvissa er alltaf slæm fyrir verðmætasköpun. Þannig að heilt yfir myndi ég segja að þetta séu slæmar fréttir fyrir alþjóðahagkerfið. Hvernig það á eftir að koma niður á einstaka löndum er svona að koma í ljós og mun halda áfram að koma í ljós næstu vikur og jafnvel mánuði. En óvissuferðin heldur áfram,“ sagði Ísak Einar, forstöðumaður SA í kvöldfréttum RÚV á laugardag. „Menntun er sameiginlegt verkefni“
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Menntadagur atvinnulífsins var afar vel sóttur og á meðal gesta voru forsvarsmenn fyrirtækja, skólastjórnendur, kennarar og lykilfólk úr stjórnsýslunni. Gestir gátu kynnt sér árangur fjölbreyttra fyrirtækja í fræðslu- og menntamálum á þar til gerðu Menntatorgi og Menntastofan tók gesti og gangandi tali þar sem kastljósinu var beint að mikilvægi menntunar og samstarfi atvinnulífs og menntakerfis. SA og ASÍ fagna skynsemisreglu
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa skilað sameiginlegri umsögn vegna áforma um breytingar á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (mál nr. S-35/2026). Meginefni frumvarpsins er að auka vægi svokallaðrar skynsemisreglu við eigna- og áhættustýringu lífeyrissjóða og draga á móti úr magnbundnum takmörkunum. SA og ASÍ taka undir þau sjónarmið sem liggja að baki breytingunum. Styðja markmið en leggja áherslu á skýrt áhrifamat og gagnsætt samráð
Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað umsögn um frumvarp til innleiðingar á tilskipun um aukna notkun endurnýjanlegrar orku. Samtökin styðja markmið um orkuskipti og sjálfbæra orkuöflun en leggja áherslu á skýrt áhrifamat og gagnsætt samráð. Samtökin telja nauðsynlegt að íblöndunarkröfur eldsneytis taki mið af kostnaðar- og framboðsáskorunum og íslenskum aðstæðum, svo sem háu hlutfalli heimahleðslu rafbíla. Þá er enn fremur lögð áhersla á einföldun leyfisveitinga. Samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja á mikið undir að hvoru tveggja sé vel leyst af hendi. Innviðafélag þarfnast nánari útfærslu
„Samtökin telja mikilvægt að stjórnvöld móti og útfæri nánar hlutverk félagsins og verkaskiptingu á skýrari hátt áður en málið er framlagt á þingi. Réttast væri að málið kæmi að nýju inn í samráðsgátt þegar það hefur verið nánar útfært þannig hægt væri að taka afstöðu til endanlegrar útfærslu á meðan málið er enn á samráðsstigi,“ segir í umsögn SA um drög að frumvarpi til laga um innviðafélag. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |