Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Upplýsingafundur um Stöðugleikasamninginn Upplýsingafundur um Stöðugleikasamninginn verður haldinn í dag, 11. mars kl. 12:00. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, mun fara yfir helstu atriði samningsins og svara þeim spurningum sem brenna á félagsmönnum. Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst miðvikudaginn 13. mars klukkan 12:00 að undangengnum öðrum upplýsingafundi. Stöðugleikasamningur í höfn Eyjólfur Árni Rafnsson formaður, Bjarnheiður Hallsdóttir varaformaður og Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri skrifa, ásamt framkvæmdastjórn SA, undir Stöðugleikasamninginn við breiðfylkingu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði. Langtímasamningur hefur verið undirritaður milli Samtaka atvinnulífsins og SGS, Eflingar, Samiðnar og Fagfélaganna. Samningurinn gildir frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028. Með undirritun samningsins hefur SA samið við meirihluta félaga á almennum vinnumarkaði. Efnahagsleg óvissa hefur komið hart niður á heimilum og fyrirtækjum undanfarin ár og misseri. Samtök atvinnulífsins og breiðfylkingin tóku því höndum saman um gerð langtímakjarasamninga sem eiga að auka fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu. Samningsaðilar voru sammála um að eitt mikilvægasta verkefnið í komandi kjaraviðræðum væri að ná niður mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins:
Aðrir sálmar Sala eignarhlutarins mun draga úr lánsfjárþörf Á meðal umsagna sem SA skiluðu í liðinni viku var umsögn um drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka. „Samtökin taka undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerðinni og telja að það sé skynsamleg ráðstöfun á fjármunum ríkissjóðs að selja eignarhlutinn og ráðstafa endurgjaldinu til niðurgreiðslu skulda. Með sölunni má draga úr þeirri áhættu sem eignarhaldi ríkissjóðs á tveimur af þremur viðskiptabönkum landsins fylgir og jafnframt draga verulega úr skuldum og skuldabyrði ríkissjóðs.“ CSRD fundaröð SA og Podium Annar fundur í morgunfundaröð SA og Podium ehf. um sjálfbærnilöggjöf CSRD og innleiðingu ESRS staðalsins fer fram á morgun, þriðjudaginn 12. mars. Tilgangur fundanna er að koma fræðslu til félagsmanna SA og aðildarsamtaka sem munu þurfa að skila inn upplýsingum skv. sjálfbærnireglugerð Evrópusambandsins CSRD og staðlinum ESRS, læra af þeim sem eru nú þegar byrjuð að máta sig við staðlana og eiga gagnlegt samtal.
Athugið: Fundaröðin býðst aðeins aðildarfyrirtækjum SA. Molinn Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson „Samtök launþega og atvinnurekenda geta ekki til lengdar lokað augunum fyrir áhrifum hinnar miklu tekjuaukningar, sem launaskrið hefur í för með sér, á almenna kaupgjaldssamninga. Hitt er svo annað mál, hvort æskilegt sé að stöðva launaskrið með öllu, sé slíkt yfirleitt framkvæmanlegt við þær aðstæður, sem hér ríkja á vinnumarkaðinum. Erlendis hefur sú skoðun víða komið fram, að launaskrið sé æskileg tegund kjarabóta, þar sem það taki betur en almennir launasamningar til greina þarfir atvinnulífsins og eftirspurnaraðstæður á vinnumarkaðnum hverju sinni.“ -Jóhannes Nordal, þáverandi seðlabankastjóri, í Fjármálatíðindum árið 1962 |