Mánudagsmolar

No images? Click here

Bjarni Benediktsson nýr framkvæmdastjóri SA

 
 

Bjarni Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og hefur störf 1. mars.

„Á tímum þar sem íslenskt atvinnulíf stendur frammi fyrir áskorunum og tækifærum sem krefjast öflugrar hagsmunagæslu, skýrra áherslna og náinnar samvinnu lykilaðila í efnahagslífinu er Bjarni Benediktsson ómetanlegur í forystu fyrir íslensk fyrirtæki. Ég hlakka til samstarfsins,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA.

Lestu fréttina á vef SA
 

Við minnum á könnun í tengslum við Menntadag atvinnulífsins

 
 

Við hvetjum alla þá sem fengið hafa til sín könnun í tengslum við Menntadag atvinnulífsins að taka þátt. Könnunin er brýnn þáttur í að meta stöðuna og mikilvægt verkfæri í hagsmunagæslu samtakanna í Húsi atvinnulífsins.

 

Skráning á Menntadag atvinnulífsins í fullum gangi

 
 

Skráning á Menntadag atvinnulífsins 11. febrúar er hafin. Dagurinn er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar.

Dagskrá Menntadags atvinnulífsins verður fjölbreytt og áhugaverð. Sérstaklega er sjónum beint að samspili og samvinnu atvinnulífs og skóla. Þátttakendur koma víða að úr atvinnulífi, menntakerfi, stjórnmálum og stjórnsýslu.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um viðamikla könnun sem lögð hefur verið fyrir forsvarsfólk fyrirtækja innan vébanda SA.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Logi Einarsson, menningar- og háskólaráðherra og Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg sitja fyrir svörum í pallborði hjá Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI.

Helga Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Arion banka, Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech, ræða málin í pallborði hjá Sigtryggi Magnasyni, forstöðumanni miðlunarsviðs SA.

Kastljósinu verður beint að samstarfi Norðlenska og VMA, starfinu í Elliðaárstöð og Bláa lóninu. Þá fáum við innlegg frá Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Sigurði Svavari Indriðasyni, sviðsstjóra bílgreinasviðs Iðunnar.

Síðast en ekki síst verður tilkynnt um menntafyrirtæki ársins og menntasprota.

Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.

Skráðu þig á Menntadag atvinnulífsins
 

Ágreiningur við VR vegna uppfærslu launataflna

 

Ágreiningur er uppi við nokkur stéttarfélög um með hvaða hætti uppfæra skuli launatöflur kjarasamninga frá 1. janúar 2026. Starfsgreinasamband Íslands, Efling og Samiðn hafa uppfært launatöflur með sama hætti og Samtök atvinnulífsins en VR, RSÍ, VM og Matvís telja að vegna framkvæmdar kauptaxtaauka 1. apríl 2025 eigi launatöflur frá 1. janúar 2026 að vera um 0,03% hærri en ella.  Félögin hafa birt hærri launatöflur sem því nemur og hefur mál vegna þessa ágreinings verið þingfest í Félagsdómi.  SA mæla með því að aðildarfyrirtæki samtakanna styðjist við launatöflur SA á meðan beðið er niðurstöðu Félagsdóms.

Launatöflur í kaupgjaldsskrá SA
 

Frumvarp um vindorku gangi gegn yfirlýstum markmiðum stjórnvalda

 

SA telja að frumvarp um breytingu á lögum nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur), í þeirri mynd sem það liggur fyrir, feli í sér verulega áhættu fyrir orkuöryggi, fyrirsjáanleika regluverks og fjárfestingarskilyrði í raforkuframleiðslu. Að sama skapi gangi frumvarpið að mörgu leyti gegn yfirlýstum markmiðum stjórnvalda um orkuskipti, verðmætasköpun og einföldun leyfisferla.

Lestu umsögnina á vef SA
 

„Að nýta veikindafríið?“

 

„Eftir glæstan sigur Íslands á Ungverjalandi á Evrópumeistaramótinu í handbolta í gærkvöldi hvatti ein af hetjum liðsins í leiknum landann til að fara út til þess að styðja landsliðið og nýta nokkra veikindadaga. Einhver kann að spyrja sig hvort unnt sé að nýta veikindadaga líkt og um orlof sé að ræða í tilvikum sem þessum,“  ritar Guðmundur Heiðar Guðmundsson, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, í grein á vef SA.

Lestu greinina á vef SA
 

Stjórnvöld verði að nýta svigrúm til frekari greininga

 
 

Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu hafa sent umsögn um áform um innleiðingu reglugerðar ESB um FuelEU Maritime. Samtökin styðja markmið um orkuskipti og minni losun í sjóflutningum, en leggja ríka áherslu á að innleiðing fari ekki fram fyrr en reglugerðin hefur verið tekin upp í EES-samninginn. Þá telja samtökin að áhrif á íslenskt atvinnulíf, samkeppni, verðlag og hagkerfið í heild hafi ekki verið greind með fullnægjandi hætti. Lagt er til að stjórnvöld nýti svigrúm til frekari greiningar og sæki nauðsynlegar aðlaganir vegna séríslenskra aðstæðna, í samræmi við reglugerðina sjálfa.

Lestu umsögn SA og SVÞ á vef SA
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe