No images? Click here

Yfirlýsing framkvæmdastjórnar SA vegna stöðunnar á vinnumarkaði í september 2026

 

Samtök atvinnulífsins vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu með því að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt. Á móti þurfa ríki og sveitarfélög að ganga fram með góðu fordæmi og stilla hækkunum gjaldskráa í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans.

Þörf er á samstilltu átaki. Samtök atvinnulífsins vilja án tafar setja í forgang umbætur á umgjörð vinnumarkaðarins í samstarfi við launþegahreyfinguna og stjórnvöld. Sá forsendubrestur sem nú er orðinn þarfnast mun víðtækari aðgerða en skammtíma leiðréttingar á stöðu sem að öðru leyti er ósjálfbær. Markmiðið þarf að vera vinnumarkaðslíkan sem styður við stöðugt verðlag og lægri vexti, sjálfbæran kaupmáttarvöxt og samkeppnishæft atvinnulíf. Varanlegur árangur krefst varanlegra umbóta.

Í kjölfar kjarasamninga á almennum markaði árið 2024 var samið um hækkanir til opinberra starfsmanna umfram þær sem Stöðugleikasamningurinn geymdi. Það sem af er samningstíma gildandi kjarasamninga hafa laun hækkað meira en um var samið og langt umfram framleiðnivöxt. Slík þróun leiðir óhjákvæmilega til verðbólguþrýstings og óstöðugleika. Verði þessi vítahringur ekki rofinn er óraunhæft að hafa væntingar um hóflegri verðbólguvæntingar.

Skammtímalausnir geta skilað tímabundnum árangri, en viðvarandi verðbólguvandi verður ekki leystur með þeim einum. Það verður að rjúfa vítahringinn.

 

Stórskotalið á Ársfundi atvinnulífsins

 
 

Hvernig eflum við samkeppnishæfni Íslands? Hvað heldur aftur af fjárfestingu, nýsköpun og framförum? Og hvernig getum við þróað vinnumarkaðinn þannig að hann styðji betur við stöðugleika, kaupmátt og vaxandi lífskjör?

Þátttakendur í dagskrá fundarins verða meðal annarra:
Baldvin Þorsteinsson | Birna Ósk Einarsdóttir | Bjarni Benediktsson | Bryndís Hlöðversdóttir | Gylfi Jónu Arnbjarnarson | Jón Ólafur Halldórsson | Kristrún Frostadóttir | Rannveig Rist | Skúli Mogensen | Þorsteinn Víglundsson.

Fundurinn stendur frá kl. 15-17 og að fundi loknum verður boðið til móttöku í Björtuloftum í Hörpu þar sem verða léttar veitingar og ljúfir tónar.

Skráðu þig á Ársfund atvinnulífsins
 

„Hræðilegt fordæmi fyrir vinnumarkaðinn í heild“

 

„Það er augljóst að það getur ekki haft nema í fyrsta lagi slæm áhrif á samkeppnisstöðu Icelandair. En í öðru lagi væri með þessu sett alveg hræðilegt fordæmi fyrir vinnumarkaðinn í heild og hér erum við með enn eina birtingarmynd þess að við erum ekki með fyrirkomulag á íslenskum vinnumarkaði sem samrýmist verðbólgumarkmiði Seðlabankans,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Mbl.is í dag, mánudag, í tilefni af því að flugvirkjar hjá Icelandair samþykktu verkfallsboðun kl. 00.01, þann 23. september.

Lestu fréttina á Mbl.is
 

„Frekari launa­hækkanir væru eins og olía á eldinn“

 

„Það var tilkynnt um tugmilljarða skattahækkanir á atvinnulífið og við teljum að þetta muni ekki styðja við framhald kjarasamninganna. Það er ekki jákvætt að ofan í hægagang í hagkerfinu, uppnám kjarasamninga á vinnumarkaði, að þá sé verið að tilkynna um slíkar skattahækkanir á atvinnulífið. Það er nú þegar ekki mikið svigrúm til að ráðast í þær launahækkanir sem þegar hefur verið samið um og þessar skattahækkanir nema um 40 prósentum af umsömdum launahækkunum á almennum vinnumarkaði á næsta ári. Þannig að þetta eru verulegar fjárhæðir í því samhengi,“ sagði Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Vísi síðasta föstudag.

Lestu fréttina á Vísi
 

„Það þarf að rjúfa þennan vítahring sem er hér“

 

„Það þarf að rjúfa þennan vítahring sem er hér. Kerfið er í raun allt fast í ákveðnum hjólförum. Hér er framleidd verðbólga með launaskriði og höfrungahlaupum. Þar er tími til kominn nú að setja fókus á verðmætasköpun og öguð vinnubrögð vegna launaþróunar,“ sagði Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins í samtali við Ríkisútvarpið í tilefni af yfirlýsingu SA um stöðuna á vinnumarkaði.

Lestu fréttina á RÚV
 

Lagt til að milljarðaútgjöld verði fest í lög án fullnægjandi kostnaðarmats

 

„Horfur í íslensku efnahagslífi hafa farið versnandi undanfarin misseri og mikil verðbólga og vaxtastig hafa slæm áhrif á samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Að mati samtakanna skýtur það skökku við að festa í lög útgjaldaaukningu sem ætla má að skipti fleiri milljörðum árlega, samhliða því að umfangsmiklar skattahækkanir á fólk og fyrirtæki eru boðaðar í fjárlögum ársins 2027,“ segir í umsögn SA um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla, orlofs- og desemberuppbót)

Lestu umsögnina á vef SA
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Vorskýrsla KTN 2026
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe