Mánudagsmolar

No images? Click here

Fjármálaáætlun: Meginvandinn liggur á útgjaldahliðinni

 
 

Samtök atvinnulífsins telja að fjármálaáætlun stjórnvalda fyrir árin 2027–2031 styðji ekki nægilega við efnahagslegan stöðugleika, hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Þetta kemur fram í umsögn SA til Alþingis.

SA benda á að meginvandi ríkisfjármála liggi á útgjaldahliðinni. Forsendur áætlunarinnar um þróun stærstu útgjaldaliða ríkissjóðs, launakostnaðar og bóta almannatrygginga, séu of bjartsýnar miðað við sögulega þróun. Án skýrra aðgerða sé hætta á að útgjöld verði verulega umfram áætlanir, með auknum verðbólguþrýstingi og hærri vaxtabyrði.

Samtökin vara einnig við áframhaldandi skuldasöfnun ríkissjóðs. Þótt gert sé ráð fyrir lækkun skuldahlutfalls síðar á tímabilinu byggi sú þróun að miklu leyti á bjartsýnum forsendum um hagvöxt.

SA gera jafnframt alvarlegar athugasemdir við fyrirhugaðar skattahækkanir á atvinnulífið. Óvissa um útfærslu þeirra geti dregið úr fjárfestingu, áætlanagerð og atvinnusköpun.

Að mati SA þurfa stjórnvöld að hverfa frá hagvaxtarletjandi skattahækkunum og beina sjónum að rót vandans: vexti ríkisútgjalda. Traustur ríkisrekstur byggi á öflugu atvinnulífi, aukinni verðmætasköpun og fyrirsjáanlegu rekstrarumhverfi.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Vörn, svo sókn

 
 

„Fyrir liggur að þrengri staða heimilanna verður ekki leyst með enn hærri launum. Það væri eins og að hella olíu á eld. Lausnin getur ekki heldur legið í því að auka álögur á fólk og fyrirtæki í þeim tilgangi að fjármagna aukin útgjöld hins opinbera.

Hið opinbera má ekki skjóta sér undan ábyrgð. Þegar heimili og fyrirtæki hafa engan annan kost en að herða ólarnar og hagræða getur hið opinbera ekki setið hjá og áskilið sér skjól fyrir verðbólgunni með stöðugum gjaldskrárhækkunum,“ skrifar Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í Viðskiptablaðið í liðinni viku.

Lestu greinina á vef Viðskiptablaðsins
 

Regluverk í siglingum rætt í London

 
 

SA fylgjast áfram grannt með þróun alþjóðlegs loftslagsregluverks í siglingum og tóku nýverið þátt í fundi umhverfisnefndar Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) í London. Þar var meðal annars rætt um áhrif nýs regluverks á alþjóðlegar siglingar, þróun IMO Net-Zero Framework og nýtt mengunarvarnarsvæði á Norðaustur-Atlantshafi.

Á fundinum lögðu SA áherslu á mikilvægi samræmds alþjóðlegs regluverks sem taki mið af sérstöðu Íslands, þar sem nær allir vöruflutningar fara fram sjóleiðis og aðstæður á Norður-Atlantshafi leiða til meiri eldsneytisnotkunar og kostnaðar en víða annars staðar.

Ný DNV-greining sýnir að gámaskip í siglingum til Íslands þurfa að meðaltali 7–8% meiri orku en sambærileg skip annars staðar í Evrópu vegna veður- og siglingaaðstæðna.

Lestu umfjöllun á vef SA
 

Hringferð SA 2026 hefst í lok maí

 
 

Samtök atvinnulífsins fara í hringferð um landið undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“. Á opnum fundum og í heimsóknum verður rætt um stöðu atvinnulífsins og þær aðgerðir sem þarf til að ná aftur stöðugleika í efnahagslífinu. Með hringferðinni vill SA draga fram hvernig hægt er að styrkja samkeppnishæfni, bæta rekstrarskilyrði og skapa grundvöll fyrir aukin lífsgæði um allt land. Á fundunum verður lögð áhersla á opna umræðu um áskoranir og tækifæri á hverjum stað.

Hringferðin er liður í því að byggja upp sameiginlegan skilning á því hvað þarf til að rjúfa vítahring óstöðugleika og skapa sterkari grunn fyrir íslenskt atvinnulíf.

26. maí. Selfoss
27. maí. Vestmannaeyjar

2. júní. Egilsstaðir
4. júní. Akureyri
5. júní. Akranes

10. júní. Reykjavík
11. júní. Ísafjörður
12. júní. Grindavík

Nánar verður sagt frá Hringferð SA þegar nær dregur.

 

„Framleiðniaukningin á Íslandi rís ekki undir þessum launahækkunum, því miður“

 
 

„Ef það er eitthvað eitt sem að ég fengið skilaboð um umfram annað frá því að ég hóf störf fyrir nokkrum vikum að þá er hversu margir stjórnendur í atvinnulífinu eru að glíma við það að hið opinbera er að stela af þeim starfsfólki.“

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, ræddi stöðuna í efnahagsmálum í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni á föstudag.

Hlustaðu á viðtalið á Vísi
 

Atvinnulífið kallar eftir raunhæfari lagasetningu um loftslagsmál

 
 

„Til þess að loftslagsmarkmið Íslands náist þarf skýra forgangsröðun, raunhæfa framkvæmd og virkt samstarf stjórnvalda og atvinnulífs. Árangur næst ekki nema fyrirtæki búi við raunhæf skilyrði til fjárfestinga, orkuskipta og innleiðingar loftslagsaðgerða. Loftslagsmarkmið og orkuskipti ná ekki fram að ganga nema uppbygging orkuinnviða, orkuframleiðslu og annarra lykilinnviða haldist í hendur við auknar kröfur til atvinnulífsins,“ segir í umsögn SA, SI, SVÞ, SFS, SAF, SFF og Samorku um frumvarp til loftslagslaga.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Plön sem bregðast

 
 

Í nýrri grein í Viðskiptablaðinu fjallar Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, um mikilvægi þess að meta áhrif skattkerfisbreytinga af raunsæi og með hliðsjón af hegðun neytenda og fyrirtækja. „Ísland er nú þegar dýr áfangastaður og sífellt fleiri sem svara því til að Íslandsferðin hafi ekki verið peninganna virði. Hvaða áhrif mun það hafa á komu, neyslu og upplifun ferðamanna að gera ferðina enn dýrari með aukinni skattheimtu? Er varlegt að gera ráð fyrir því að ferðamenn haldi áfram að sækja landið heim, sama hvað það kostar? Líklega ekki.“

Lestu greinina á vef Viðskiptablaðsins
 

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn 13. maí í Húsi atvinnulífsins

 
 

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 13. maí næstkomandi klukkan 11:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf.

Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur allra aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins.

Nánari upplýsingar
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe