Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Samtaka sigrumst við á verðbólgunni Til þess að ná megi tökum á verðbólgunni, og þar af leiðandi lækka vexti, þurfa allir hlutaðeigandi að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Samtaka aukum við hagsæld. Gífurlegt tjón af völdum verkfalls flugumferðarstjóraKjarasamningur við flugumferðarstjóra er með þeim síðustu í þeirri kjarasamningalotu sem hófst með stefnumarkandi samningum við stærstu stéttarfélög landsins fyrir rúmu ári. „Ætla má að beinn kostnaður hagkerfisins af völdum algerrar stöðvunar flugsamgangna í einn dag gæti numið um 1,5 milljörðum króna, þar af má ætla að beint tjón ferðaþjónustu nemi einum milljarði króna hið minnsta.“ Kaffiboðið í Karphúsinu Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skrifaði grein á Vísi um helgina um heimildir ríkissáttasemjara. „Hér á landi getur ríkissáttasemjari boðið upp á fundaraðstöðu og kaffi, hann er gestgjafi aðila vinnumarkaðarins. Embættið hefur í raun engar leiðir til þess að framfylgja þeirri launastefnu sem hefur verið mörkuð í samningum á almennum vinnumarkaði. Á hinum Norðurlöndunum hafa ríkissáttasemjarar almennt víðtækari heimildir.“ Aðrir sálmar Stuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ: Opið fyrir umsóknir Opnað hefur verið fyrir umsóknir um tímabundinn stuðning til greiðslu launa starfsfólks vegna náttúruhamfara í Grindavík. Hægt er að sækja um stuðning til greiðslu launa til og með 31. maí 2024. Hátíðarkveðja frá Samtökum atvinnulífsins Samtök atvinnulífsins óska landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir það liðna. Mánudagsmolar munu liggja í dvala yfir hátíðirnar, en snúa aftur á nýju ári. |