|
Mánudagsmolar No images? Click here Gleðilega páska!
Samtök atvinnulífsins óska þér og þínum gleðilegra páska. Brýnt að ná breiðri sátt um aðgerðir gegn verðbólgu
Samtök atvinnulífsins hafa sent forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra bréf þar sem þau lýsa vaxandi áhyggjum af stöðu efnahagsmála og ítreka beiðni sína um þríhliða samráðsvettvang. Í bréfinu, dagsettu 20. mars, er bent á að fyrra erindi sem SA sendi forsætisráðherra í janúar síðastliðnum hafi enn ekki verið svarað. „Sú óheillaþróun sem við stöndum frammi fyrir og birtist okkur í vaxandi verðbólgu, hækkandi vöxtum og auknu atvinnuleysi, ásamt óvissu um hækkandi verð á olíuvörum, kallar á mun breiðara samtal og afgerandi aðgerðir,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. „Við þurfum að styrkja samkeppnishæfni landsins og leggja grunn að öflugu hagvaxtarskeiði á sama tíma og við náum tökum á verðbólgunni.“
„Þetta eru einfaldlega vonbrigði“
„Þetta eru einfaldlega vonbrigði og eykur enn líkurnar á því að aðilar á vinnumarkaði þurfi að setjast niður saman og fara yfir stöðuna í haust þegar skoðunarpunktur kjarasamninga rennur upp,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið í tilefni af nýjum mælingum sem sýndu verðbólgu upp á 5,4%. Hafði verðbólgan aukist á milli mánaða. Kaupgjaldsskrá nr. 33 tekur gildi 1. apríl Kaupgjalddskrá nr. 33 tekur gildi 1. apríl. Lágmarkslaunataxtar kjarasamninga hækka um 0,06% á grundvelli kauptaxtaauka kjarasamninga frá 1. apríl 2026. Laun yfir kauptöxtum kjarasamninga hækka ekki. Aukið framboð íbúða lykillinn fremur en hærri ríkisframlög
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn til velferðarnefndar Alþingis um frumvarp sem felur í sér hækkun stofnframlaga ríkisins til almennra íbúða. Í frumvarpinu er lagt til að hámarkshlutfall framlaga hækki úr 18% í allt að 23%, auk þess sem viðbótarframlög hækki og nái til fleiri verkefna, meðal annars umbreytingar atvinnuhúsnæðis í íbúðir. SA lýsa skilningi á markmiðum frumvarpsins, einkum í ljósi erfiðs fjármögnunarumhverfis vegna hás vaxtastigs og hækkandi byggingarkostnaðar. Samtökin leggja þó áherslu á að meginlausn húsnæðisvandans felist í almennum aðgerðum sem styðji við aukið framboð íbúða í samræmi við þarfir markaðarins, frekar en auknum ríkisstuðningi. „Að lokum vilja SA árétta að húsnæðismál eru meðal mikilvægustu velferðar- og efnahagsmála samtímans og skipta sköpum fyrir lífskjör almennings. Uppbygging húsnæðis er ein af grundvallarforsendum þess að hér byggist upp samkeppnishæft atvinnulíf og gott samfélag.“ SA fagna miðlægum grunni en hvetja til samstarfs við einkaaðila
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um frumvarp stjórnvalda um miðlægan nemendagrunn fyrir grunn- og framhaldsskóla. Í umsögninni er tekið undir markmið frumvarpsins um að bæta skráningu og nýtingu gagna í menntakerfinu, enda geti slík gögn stutt við betri ákvarðanatöku og stefnumótun. Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn 13. maí í Húsi atvinnulífsins
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 13. maí næstkomandi klukkan 11:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |