Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Stöðugleikarnir hófust á dögunum Stöðugleikarnir hófust á dögunum með vel sóttum fundum á Akureyri og í Reykjavík. Þar lagði atvinnulífið, ásamt stéttarfélögum á almennum vinnumarkaði og stjórnvöldum, línurnar um hvernig Stöðugleikasamningnum skuli fylgt eftir svo tryggja megi efnahagslegan stöðugleika. „Aðgerðum sem tóku ekki bara tillit til þeirra sem voru að semja á almenna markaðnum, heldur líka opinbera markaðarins. Við erum því búin að segja hvað við getum gert. Það er búið að senda út merkið. Þetta er það sem að allir geta samið um og verða að semja um.“ - Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Samninganefnd SA stendur vörð um launastefnuna Verkfallsaðgerðir munu að óbreyttu hefjast á Keflavíkurflugvelli næstkomandi fimmtudag þann 9. maí, þegar ótímabundið yfirvinnubann félagsmanna Sameykis og Félags flugmálastarfsmanna ríkisins tekur gildi. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, segir samninganefnd SA standa vörð um þá launastefnu sem hafi verið mörkuð í breiðu samráði fólks á almennum vinnumarkaði. „Viðræðurnar í dag fara vissulega fram í skugga þess að viðsemjendur okkar hafa boðað aðgerðir og skæruverkföll á Keflavíkurflugvelli sem að óbreyttu hefjast innan örfárra daga með tilheyrandi röskun fyrir farþega og beinu fjártjóni fyrir fyrirtæki. Þetta er í þriðja sinn á innan við hálfu ári sem boðað er til aðgerða á Keflavíkurflugvelli sem er mikið umhugsunarefni.“ Formannskjör stendur nú yfir Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Rafræn kosning hófst þriðjudaginn 30. apríl og lýkur kl. 10.00 á aðalfundardag, miðvikudaginn 15. maí 2024. Þeir rétthafar sem hafa kosningarétt hafa fengið upplýsingar um kjörið í tölvupósti og verða upplýstir reglulega í aðdraganda aðalfundar. Aðrir sálmar Stuðla að heilbrigðari húsnæðismarkaði Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands skiluðu inn sameiginlegri umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Með frumvarpinu verður lífeyrissjóðum gert kleift að fjárfesta hluta eignasafns síns í félögum sem hafa það að meginstarfsemi að leigja út íbúðarhúsnæði til einstaklinga. „Húsnæðisstuðningi hefur jafnan verið beint að eftirspurnarhlið markaðarins, sem án aukins framboðs getur leitt til frekari hækkunar húsnæðisverðs, þvert á tilætluð áhrif. Aukið framboð fjölbreyttra búsetukosta er hins vegar til þess fallið að stuðla að heilbrigðari húsnæðismarkaði og draga raunverulega úr kostnaði heimila án þess að opinber stuðningur þurfi að koma til.“ Molinn „Lengi hefur verið vilji á meðal aðila vinnumarkaðarins til að bæta kjarasamningsferlið þannig að kjarasamningar styðji við efnahagslegan stöðugleika. Nokkur skref hafa verið stigin í þá átt undanfarin ár þó að ekki hafi náðst full samstaða þar um. Horft hefur verið til norræna módelsins sem byggist á því að á Norðurlöndum ríkir almenn samstaða á vinnumarkaði um að útflutningsgreinar í alþjóðlegri samkeppni séu leiðandi í launamyndun og gerð kjarasamninga og skapi fordæmi fyrir aðra. Mikið er lagt upp úr undirbúningi fyrir kjarasamninga og efnahagslegar forsendur greindar sem og launatölfræði sem liggur til grundvallar mati á svigrúmi til launahækkana. Aðkoma stjórnvalda að kjarasamningum er mismunandi en alls staðar er hefð fyrir þríhliða samstarfi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins.“ -Rammagrein 2
í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til áranna 2025 - 2029. |