Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Starfsmenn fjármálafyrirtækja, Sameyki og FFR semja um stöðugleika Það bárust mikil gleðitíðindi úr Karphúsinu í liðinni viku þegar Starfsmenn fjármálafyrirtækja, Sameyki og Félag flugmálastarfsmanna ríkisins gerðu langtímakjarasamninga um stöðugleika. Aðalfundur SA 15. maí Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 15. maí næstkomandi klukkan 12:00. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður meðal annars frá kjöri formanns Samtaka atvinnulífsins og stjórnar SA 2023-2024. Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka. Formannskjör stendur nú yfir Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, gefur áfram kost á sér til formennsku Samtaka atvinnulífsins í formannskjöri sem stendur nú yfir. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Rafræn kosning hófst þriðjudaginn 30. apríl og lýkur kl. 10.00 á aðalfundardag, miðvikudaginn 15. maí 2024. Þeir rétthafar sem hafa kosningarétt hafa fengið upplýsingar um kjörið í tölvupósti og verða upplýstir reglulega í aðdraganda aðalfundar. Aðrir sálmar Hallarekstur er ekki ókeypis Samtök atvinnulífsins hafa skilað inn umsögn um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2025-2029. Hraður vöxtur hefur einkennt íslenska hagkerfið frá heimsfaraldri. Þótt enn sé nokkuð bjart yfir þá eru blikur á lofti og útlit fyrir að senn hægi á. „Ákjósanlegt hefði verið ef ríkissjóður hefði stutt við peningastefnuna í baráttunni við verðbólguna með því að halda að sér höndum þegar kom að útgjaldaaukningu, snúa hallarekstrinum við fyrr en ella og greiða hraðar niður skuldir. Þess í stað var óvæntum tekjum sífellt ráðstafað til aukinna útgjalda og ráðist í skattahækkanir sem hæglega hefði mátt komast hjá.“ Misráðið skattasamráð Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands skiluðu inn sameiginlegri umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Með frumvarpinu verður lífeyrissjóðum gert kleift að fjárfesta hluta eignasafns síns í félögum sem hafa það að meginstarfsemi að leigja út íbúðarhúsnæði til einstaklinga. „Húsnæðisstuðningi hefur jafnan verið beint að eftirspurnarhlið markaðarins, sem án aukins framboðs getur leitt til frekari hækkunar húsnæðisverðs, þvert á tilætluð áhrif. Aukið framboð fjölbreyttra búsetukosta er hins vegar til þess fallið að stuðla að heilbrigðari húsnæðismarkaði og draga raunverulega úr kostnaði heimila án þess að opinber stuðningur þurfi að koma til.“ Molinn „Nú er tíminn til þess að tileinka okkur nýja nálgun til þess að verja lífskjör og skapa skilyrði fyrir fjárfestingu í frekari verðmætasköpun.“ - Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. |