Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Upplýsingafundur - KjaraviðræðurSamtök atvinnulífsins halda upplýsingafund fyrir aðildarfyrirtæki um kjaraviðræður á Zoom, fimmtudaginn 14. desember kl. 13:00. Þar sem meðal annars verður farið yfir helstu atriði sem legið hafa til grundvallar í viðræðuáætlunum og undirbúninginn sem farið hefur fram í haust. Skattspor ferðaþjónustunnar kynnt á morgunverðarfundi SA og SAF Skattspor ferðaþjónustunnar árið 2022 var kynnt á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins og Samtaka ferðaþjónustunnar síðastliðinn fimmtudag. Reykjavík Economics reiknaði skattspor ferðaþjónustunnar fyrir árið 2022 og skilaði skýrslu með sambærilegum hætti og hefur verið gert fyrir stærstu fyrirtæki landsins sem og aðrar útflutningsatvinnugreinar. „Skattspor ferðaþjónustunnar undirstrikar þá staðreynd að íslenskt atvinnulíf starfar ekki í tómarúmi, heldur er það undirstaða hagsældar í samfélaginu. Þegar íslenskt atvinnulíf vex og dafnar – vex og dafnar íslenskt samfélag. Það er því mikilvægt að íslenskt atvinnulíf búi við stöðugleika, og fyrirsjáanleika, svo það geti staðið undir þeirri velferð sem við sem samfélag gerum kröfu um,“ sagði Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, á fundinum. Aðrir sálmar Óskað eftir tilnefningum fyrir menntaverðlaun atvinnulífsins 2024 Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar 2024. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf, en einungis má tilnefna skráð aðildarfélög SA. Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út þriðjudaginn 23. janúar. Við stöndum vaktinaSamtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu aðildarfyrirtækja þannig að framleiðni og verðmætasköpun þeirra geti aukist. Molinn „Það að tengja allt fræðslustarf félagsins við leiðarljós þess og innri gildi hefur skilað árangri. Okkur hefur tekist, með þessu, að byggja upp sterkan hóp samstarfsfólks sem hefur sjálfstraust og þekkingu til þess að sinna starfi sínu vel, jafnvel við kerfjandi aðstæður, þar sem oft þarf að bregðast við af festu og fagmennsku til að tryggja upplifun gesta okkar og góðar minningar.“ |