|
Mánudagsmolar No images? Click here Valið stendur á milli vítahrings og stöðugleika
Fyrstu fundir Hringferðar SA 2026 fóru fram á Selfossi og í Vestmannaeyjum þar sem fulltrúar atvinnulífs, sveitarfélaga, launafólks og samfélagsins komu saman til að ræða stöðu efnahagsmála og framtíð íslensks atvinnulífs. Á báðum fundum kom skýrt fram að verðbólga, háir vextir og skortur á fyrirsjáanleika eru meðal stærstu áskorana sem fyrirtæki og heimili standa frammi fyrir. Jafnframt ríkti víðtæk samstaða um mikilvægi þess að skapa stöðugleika til lengri tíma og styrkja forsendur verðmætasköpunar um allt land. Á Selfossi var meðal annars rætt um húsnæðismál, rekstrarskilyrði fyrirtækja og áhrif regluverks og gjaldtöku á uppbyggingu. Í Vestmannaeyjum var sérstök áhersla lögð á samkeppnisstöðu útflutningsgreina, ferðaþjónustu, sjávarútveg og mikilvægi öflugra innviða og samgangna fyrir atvinnulíf á landsbyggðinni. Rauði þráðurinn í umræðunum var sá að stöðugleiki er forsenda bættra lífskjara. Þrátt fyrir ólík sjónarmið voru þátttakendur sammála um að aukið traust, ábyrg hagstjórn og gott samstarf aðila vinnumarkaðarins skipti lykilmáli ef takast á að rjúfa vítahring verðbólgu. Hringferð SA heldur áfram um land allt á næstu vikum undir yfirskriftinni Rjúfum vítahringinn. 3. júní. Egilsstaðir 10. júní. Reykjavík Skylda til jafnlaunavottunar afnumin Alþingi samþykkti í gær lög um afnám skyldu til jafnlaunavottunar og verður jafnlaunavottun því valkvæð líkt og upphaflega var ætlunin með hönnun jafnlaunastaðalsins. Samtök atvinnulífsins hafa lengi bent á að jafnlaunavottun sé ekki til þess fallin að útrýma kynbundnum launamun á vinnumarkaði og fagna samþykkt frumvarpsins. Verðbólga er ekki náttúruafl
„Þegar öllu er á botninn hvolft þurfum ekki að vera sammála um allt til að standa saman um það sem skiptir mestu máli. Við eigum verðbólguna sem sameiginlegan óvin. Það er sameiginlegt verkefni okkar nú að rjúfa vítahringinn og endurheimta stöðugleikann. Þannig höldum við Íslandi í fremstu röð,“ ritaði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í grein sinni í Morgunblaðinu síðasta laugardag. Vinnustaðaskírteini og skyldur atvinnurekenda Vinnustaðaskírteini eru skírteini sem atvinnurekandi og starfsfólk þarf að hafa á sér við störf sín eða hafa þau tiltæk, sbr. lög nr. 42/2010 um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Skyldan nær til ákveðinna atvinnugreina og starfa, sbr. auglýsingu nr. 386/2026. Um framkvæmd eftirlits er fjallað í samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem aðgengilegt er á skirteini.is. Tilgangur vinnustaðaskírteina er að tryggja að farið sé að gildandi lögum og kjarasamningum. Vinnustaðaskírteinum er einnig ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði. Atvinnurekendum er heimilt að gefa út rafræn vinnustaðaskírteini sem hægt er að framvísa í farsíma eða framsenda beint frá atvinnurekanda til eftirlitsfulltrúa. SA standa ásamt SI, SAF og SVÞ að lausninni hverertu.is þar sem aðildarfyrirtæki SA njóta 50% afsláttar af árgjaldi. Eftirlitsfulltrúar, sem starfa á grundvelli laganna og samkomulagsins, hafa rétt til aðgangs að vinnustöðum í ákveðnum atvinnugreinum. Eftirlitsfulltrúar skulu tilkynna fulltrúa atvinnurekanda um komu sína og haga eftirliti þannig að sem minnst röskun verði fyrir starfsemina. Þeir hafa heimild til að krefja atvinnurekendur og starfsmenn um framvísun vinnustaðaskírteina. Vanræksla á framangreindri skyldu kann að leiða til þess að eftirlitsfulltrúar tilkynni um það til Vinnueftirlitsins sem getur krafist þess að atvinnurekandi bæti úr annmörkunum innan hæfilegs frests að viðlögðum dagsektum. Rjúfum vítahringinn á Sprengisandi
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, var á Sprengisandi á sunnudag þar sem hann ræddi stöðu efnahagsmála, vinnumarkaðsmódelið og Hringferð SA - Rjúfum vítahringinn. Atvinnulífið varar við gullhúðun við innleiðingu
SA og aðildarsamtök hafa sent Alþingi umsögn um frumvarp sem innleiðir SRD II-regluverk Evrópusambandsins í íslenskan rétt. Samtökin leggja almennt áherslu á að við innleiðingu Evrópureglna sé ekki farið lengra en lágmarkskröfur kveða á um og að íslensk fyrirtæki búi við sambærileg samkeppnisskilyrði og fyrirtæki í öðrum EES-ríkjum. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |