No images? Click here

Atvinnulífið, Evrópusambandsaðild og staðan á vinnumarkaði

 
 

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, var gestur í Silfrinu á RÚV á mánudagskvöld ásamt Guðmundi Kristjánssyni, forstjóra Brims, Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR, og Sveini Sölvasyni, forstjóra Embla Medical. Umræðuefnið var afstaða atvinnulífsins til aðildar að Evrópusambandinu og staðan á vinnumarkaði og í efnahagslífinu.

Horfðu á þáttinn
 

Virðing fyrir verðmætasköpun

 
 

„Atvinnulífið er ekki eitthvað sem stendur utan samfélagsins. Það er hluti af samfélaginu. Þar starfar langstærstur hluti landsmanna. Þar verða til nýjar hugmyndir, ný störf og ný tækifæri. Þar verða til þau verðmæti sem gera okkur kleift að fjármagna heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, samgöngur, löggæslu og alla þá sameiginlegu þjónustu sem við viljum byggja upp. Áður en hægt er að skipta verðmætum þurfa þau að verða til. Þess vegna er verðmætasköpun ekki sérhagsmunamál. Hún er almannahagsmunamál.,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í grein sinni Morgunblaðinu sem nú er aðgengilega á vef Samtaka atvinnulífsins

Lestu greinina á vef SA
 

Súrefni fæst ekki með hærri sköttum

 

„Við þessar aðstæður þarf að halda áfram verkefninu við að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það er ennþá verkefnið. Til þess þarf ríkið og hið opinbera að halda aftur af sér og gefa svigrúm og súrefni. Súrefni fæst ekki með hærri sköttum. Súrefni fæst ekki með því að setja útgjöld ríkisins á sjálfvirkni, eins og menn hafa verið að gera til dæmis í almannatryggingum.“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins, fimmtudaginn 13. ágúst. „Vegna þess að það er í sjálfu sér auðvitað eftirsóknarvert að við hér á Íslandi getum borgað hvað hæst laun í heimi en þá þurfa líka aðstæðurnar að vera til staðar og þær eru það ekki í dag.“

Lestu fréttina á vef RÚV
 

Skýrar leikreglur forsenda árangurs í orkuskiptum

 

„Samtökin styðja markmið um að Loftslags- og orkusjóður verði öflugt tæki til að hraða orkuskiptum, nýsköpun og nauðsynlegum fjárfestingum atvinnulífsins. Til að svo verði þarf umgjörð sjóðsins að byggjast á skýrum og fyrirsjáanlegum reglum, málefnalegum matsviðmiðum, samkeppnishlutleysi og réttri beitingu ríkisaðstoðarreglna. Mikilvægt er að styrkjakerfið sé nægilega sveigjanlegt til að styðja við stór og kostnaðarsöm verkefni sem eru nauðsynleg til að markmið stjórnvalda um orkuskipti og samdrátt í losun náist,“ segir í umsögn SA, SI og SVÞ um reglugerð um Loftslags- og orkusjóð.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Takið daginn frá: Ársfundur atvinnulífsins 1. október

 
 

Ársfundur atvinnulífsins verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 1. október undir yfirskriftinni Við sækjum fram.

Ársfundurinn er einn stærsti vettvangur landsins fyrir samtal atvinnulífs, stjórnvalda og annarra lykilhagaðila um stöðu efnahagsmála og framtíð íslensks samfélags.

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu verða kynntar bráðlega. Þangað til hvetjum við félagsmenn og aðra áhugasama til að taka daginn frá.

 

Rjúfum vítahringinn: Fyrirlestur frá Hringferð

 
 

Fyrirlesturinn sem Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins, hélt á Hringferð SA, Rjúfum vítahringinn, er nú aðgengilegur á vef SA.

Horfðu á fyrirlesturinn
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe