No images? Click here

Frábærri hringferð lokið

 
 

SA hafa undanfarnar þrjár vikur verið í hringferð víða um landið. Fundir voru haldnir á Selfossi, í Vestmannaeyjum, á Egilsstöðum, Akureyri, Akranesi, í Reykjavík, á Ísafirði og í Grindavík.

Auk funda fóru samtökin í fjölda heimsókna til félagsmanna vítt og breitt um landið. Fundir eins og þessir reynast okkur vel í starfi okkar, og það er dýrmætt að heyra beint frá félagsmönnum um þær áskoranir sem þeir standa frammi fyrir.

„Það sem maður tekur helst út úr þessum fundum og heimsóknum er þessi mikla seigla og viðnámsþróttur sem býr í íslensku samfélagi. Það er búið að vera frábært að hitta fólkið og ræða áskoranir þeirra sem eru á viðkomandi svæðum. Við sjáum það hvort sem það eru lítil fyrirtæki eða stór að þá eru flestir að glíma við sambærileg vandamál. Við erum að sjá að áhyggjurnar snúast um það hvernig við eflum samkeppnishæfni atvinnulífsins og hvernig við ætlum að standa undir þeim lífskjörum sem við höfum byggt upp hér í gegnum tíðina,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA. 

SA vilja þakka þeim fjölmörgu sem lögðu okkur lið í hringferðinni, buðu okkur í heimsókn og sóttu fundina. Skilaboðin eru skýr og það ríkir augljós samhljómur um það sem skiptir máli fyrir komandi haust.

 

Innlit á Reykjavíkurfund hringferðar SA

 

,,Þetta samtal í dag er liður í þessu stóra samtali sem við þurfum að taka í samfélaginu og ég er sannfærður um góðan árangur,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdarstjóri SA að liðnum hringferðarfundi í Reykjavík.

 

,,Þetta eru allt saman nýjir skattar''

 
 

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í Dagmálum á Mbl.is stjórnvöld ekki geta komist hjá því að kalla nýjar álögur réttum nöfnum.

Horfðu á viðtalið hér
 

Heilbrigð vinnustaðamenning

 
 

Vinnueftirlitið í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, fór nýverið af stað með starfshóp um aðgerðavakningu um áhrif heilbrigðrar vinnustaðamenningar á líðan starfsfólks á vinnustöðum.  Samtök atvinnulífsins eiga sæti í starfshópnum ásamt fulltrúum frá ASÍ, BSRB, BHM, embætti Landlæknis, Kennarasambandi Íslands, Kjara- og mannauðssýslu ríkisins, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, VIRK og Vinnueftirlitsins. Tilgangurinn er að hvetja vinnustaði landsins til að innleiða heilbrigða vinnustaðamenningu og leggja áherslu á öryggi og vellíðan starfsfólks í daglegum störfum sínum. Þar skiptir máli að allir sem starfa innan vinnustaðarins beri ábyrgð og þurfi að taka þátt.  Miðað er við að starfshópurinn leggi fram tillögur í lok árs 2026. Samtök atvinnulífsins hafa um árabil lagt áherslu á heilbrigða vinnutaðamenningu og hvernig best sé að styrkja sálfélagslegt vinnuumhverfi starfsfólks. Með því að vinna markvisst að því að móta styðjandi og heilsusamlegt vinnuumhverfi er stuðlað að aukinni virkni og starfsánægju einstaklinga á vinnumarkaði.  Ef sálfélagslegt vinnuumhverfi er ekki gott getur það haft neikvæð áhrif á líðan starfsfólks og þannig leitt til verri afkasta, slysa og fjarvista sem getur haft mikil áhrif á afkomu fyrirtækis.

Umfjöllun um sálfélagslegt vinnuumhverfi hér
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe