|
Mánudagsmolar No images? Click here Telja gjaldtöku og leyfiskerfi geta skert samkeppnishæfni
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um lagareldi þar sem markmiðið er að styrkja umgjörð greinarinnar, draga úr umhverfisáhrifum og efla sjálfbæra verðmætasköpun. Samtökin taka almennt undir markmið frumvarpsins en leggja áherslu á að útfærsla lykilákvæða þurfi að vera skýrari og betur ígrunduð. Fræðslufundur fyrir fyrirtæki – Allan hringinn
Þann 6. maí verður haldinn fræðslufundur í Húsi atvinnulífsins í Hyl frá kl. 09:00–10:00. Þar verður verkefnið Allan hringinn kynnt og farið yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt vefinn til að einfalda flokkun á vinnustöðum og draga úr kostnaði. Fundurinn er opinn og hægt er að taka þátt bæði á staðnum og í streymi, en skráning er nauðsynleg. Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun mun kynna verkefnið og sýna hvernig fyrirtæki geta nýtt sér efni vefsins í framkvæmd. Að kynningu lokinni verða spurningar og umræður. Verkefnið Allan hringinn hófst haustið 2024, Samtök atvinnulífsins lögðu könnun fyrir félagsmenn til að greina hvaða fræðslu og verkfæri vantaði helst varðandi flokkun innan fyrirtækja. Niðurstaðan er vefsíðan https://urgangur.is/allan-hringinn/, þar sem finna má hagnýtar leiðbeiningar um betri flokkun, sparnað og önnur gagnleg ráð sem fyrirtæki geta nýtt sér. 3. Lyklar að hæfni framtíðarinnar: Hæfnigreining starfa
Vinnumarkaðurinn tekur örum breytingum. Störf breytast og ný störf verða til, jafnvel nýjar atvinnugreinar, sem endurspegla breyttar áherslur, tækniframfarir og sjálfbærni á vinnumarkaði. Hvernig tryggjum við að þekkingin fyrir þessi nýju störf verði til staðar um allt land, svo Ísland verði samkeppnishæft á alþjóðamarkaði? Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA fjallar um hæfnigreiningu starfa í þriðju og síðustu grein sinni um lykla að hæfni framtíðarinnar. Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn 13. maí í Húsi atvinnulífsins
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 13. maí næstkomandi klukkan 11:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf. Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur allra aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins. SA styðja stofnun innviðafélags með skýrum fyrirvörum
Samtök atvinnulífsins taka jákvætt í frumvarp um stofnun innviðafélags sem ætlað er að efla fjármögnun og uppbyggingu samgönguinnviða á Íslandi. Í umsögn samtakanna kemur fram að brýn þörf sé á aukinni fjárfestingu í innviðum, enda hafi uppbygging setið á hakanum um árabil og viðhaldsskuld safnast upp. SA telja að innviðafélag geti verið mikilvægt skref til að bæta stöðuna, sérstaklega ef það stuðlar að aukinni þátttöku einkaaðila. Samvinnuleiðir hins opinbera og einkageirans (PPP) geti tryggt betri áhættudreifingu, aukna skilvirkni og hraðari framkvæmd verkefna. Slík nálgun geti einnig stuðlað að betra viðhaldi og lægri heildarkostnaði til lengri tíma. SA leggjast gegn varanlegri heimild um nýtingu séreignarsparnaðar
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem lagst er gegn frumvarpi sem kveður á um varanlega heimild til að ráðstafa viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Í umsögn SA er bent á að sambærileg heimild hafi verið tekin upp árið 2014 sem tímabundin aðgerð í kjölfar fjármálahrunsins til að bregðast við mikilli skuldsetningu heimila. Nú sé hins vegar lagt til að festa úrræðið í sessi til frambúðar auk þess sem skilyrði verði rýmkuð. Atvinnulíf, vinnumarkaður og verðbólga
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, kom víða við í ítarlegu spjalli í hlaðvarpinu Chess after dark í síðustu viku. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |