|
No images? Click here „Við þetta verður ekki búið“
„Við höfum verið í hægum vexti í þessu hagkerfi í þrjú ár og við höfum haft mjög hátt vaxtastig í allan þennan tíma. Það sem við þurfum er meiri verðmætasköpun til þess að rísa undir velferðarkerfinu á Íslandi og til þess að skapa velborgandi störf. En þá kemur ríkisstjórnin og boðar tugmilljarða skattahækkanir. Við þetta verður ekki búið,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Ríkisútvarpið í dag. „Það er ekkert við því að búast að við náum okkur aftur á strik og förum að rísa undir góðum lífskjörum ef haldið er áfram á þessari braut.“ Auknar líkur á harðri lendingu
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, sagði í viðtali við Morgunblaðið í dag, mánudag, að þeirri þróun sem orðið hefur að undanförnu verði að snúa við. „Það byrjar á því að stjórnvöld sýni verðmætaskapandi greinum á landinu skilning og skapi þeim skilyrði til að vaxa og dafna. Ég bendi á að frá árinu 2023 hefur verið mjög takmarkaður hagvöxtur á Íslandi og neikvæður vöxtur framleiðni. En laun hafa haldið áfram að hækka, ekki síst hjá hinu opinbera. Það gerðist í fyrra og aftur á þessu ári. Þannig að líkurnar á að við fáum harða lendingu eru mjög vaxandi.“ Kaupmáttur aukist en vaxta- og húsnæðisbyrði dreifist ójafnt
Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aukist hjá öllum samfélagshópum sem teknir voru til skoðunar í nýrri greinargerð ríkisins og aðila vinnumarkaðarins. Greiningin sýnir þó að háir vextir og húsnæðiskostnaður hafa komið misjafnlega niður á heimilum. „Greiningin staðfestir að lífskjör hafa batnað og kaupmáttur aukist þvert á samfélagið. Hún sýnir þó jafnframt að verðbólga og háir vextir leggjast misþungt á fólk. Ungt fólk, barnafjölskyldur og þeir sem eru að koma sér upp húsnæði bera þar þyngri byrði en aðrir. Skýrasta leiðin til að bæta stöðu þessara hópa er að ná verðbólgunni niður, skapa skilyrði fyrir lægri vöxtum og ryðja úr vegi hindrunum sem standa í vegi fyrir aukinni húsnæðisuppbyggingu,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Rannveig Rist, Birna Ósk Einarsdóttir og Skúli Mogensen á Ársfundi atvinnulífsins 1. október
Dagskrá Ársfundar atvinnulífsins er í mótun og bætist hratt í þátttakendalista fundarins. Það gleður okkar að tilkynna að Rannveig Rist, Birna Ósk Einarsdóttir og Skúli Mogensen munu öll taka þátt í fundinum. Áður hefur verið tilkynnt um ávarp Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra. Fundurinn verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 1. október undir yfirskriftinni Við sækjum fram. Við hvetjum félagsmenn og aðra áhugasama til að taka daginn frá. Regluverk um raforkuviðskipti taki mið af íslenskum aðstæðum
Samtök atvinnulífsins styðja markmið um aukið gagnsæi og traust á heildsöluorkumarkaði. Við útfærslu reglnanna þarf þó að taka mið af stærð og sérstöðu íslenska raforkumarkaðarins. SA geta ekki fallist á að fyrirliggjandi reglugerð taki gildi í óbreyttri mynd. Í umsögn SA um reglugerðardrögin kemur fram að mikilvægir þættir framkvæmdarinnar séu enn ófrágengnir. Leiðbeiningar og tæknilegar kröfur liggja ekki fyrir, meðal annars um gagnaskil og birtingu upplýsinga. Markaðsaðilar þurfa jafnframt nægan tíma til að prófa kerfi og aðlaga verklag. SA leggja því til að gildistöku verði frestað og tíminn nýttur til að endurmeta umfang, gildissvið og nauðsyn einstakra krafna, einfalda regluverkið og koma í veg fyrir óþarfa kostnað og tvíverknað. Samtökin leggja áherslu á áframhaldandi samráð við markaðsaðila, hagsmunasamtök og Raforkueftirlitið við endurmat og frekari útfærslu regluverksins. Viðmið gætu verið í andstöðu við lög
„Samtökin styðja heils hugar það markmið að tryggja að opinber innkaup fari fram á ábyrgan hátt. Samtökin vara hins vegar við að þau viðmið sem hér eru lögð til kunna að stórum hluta að vera metin í andstöðu við lög nr. 120/2016 um opinber innkaup og geti haft í för með sér bótaskyldu ríkisins,“ segir í umsögn SA og SVÞ um um drög að viðmiðum fyrir ræstingarútboð ríkisins. Ályktun stjórnar SA um stöðuna á vinnumarkaði „Stjórn Samtaka atvinnulífsins kallar eftir því að stjórnvöld axli sína ábyrgð á stöðugleika og samkeppnishæfni og breyti um kúrs. Samtökin eru reiðubúin til samtals við stjórnvöld og verkalýðshreyfinguna um aðgerðir sem ná niður verðbólgu og vöxtum, styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins og leggja þannig grundvöll að nýju vaxtarskeiði. Áður en hægt er að skipta verðmætum þarf að skapa þau.“ segir í ályktun stjórnar Samtaka atvinnulífsins frá 18. ágúst síðastliðnum. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |