|
Mánudagsmolar No images? Click here Launahækknir og verðbólga - vinnumarkaður í viðjum vanans
,,Launaþróunin í hagkerfinu hefur síður en svo verið í takti við þau 4% sem lagt var upp með í kjarasamningunum. Annars vegar fór opinberi markaðurinn fram úr þeim almenna og hins vegar hafa hækkanir á almenna markaðinum mælst talsvert umfram það sem samið var um. Til viðbótar hefur framleiðniþróun ekki verið hagfelld - það hefur því reynst lítil innistæða fyrir þeim launahækkunum sem samið var um. Það er gjarnan skautað fram hjá þeirri áhættu sem atvinnurekendur undirgangast þegar þeir semja um launahækkanir fram í tímann án þess að hafa nokkra vissu fyrir því að aukin verðmætasköpun verði til staðar til að standa undir slíkum hækkunum.'' Sjáumst á Menntadegi atvinnulífsins á miðvikudaginn!
Menntadagur atvinnulífsins fer fram á miðvikudaginn, 11. febrúar næstkomandi. Skráning er í fullum gangi. Dagurinn er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar. Dagskrá Menntadags atvinnulífsins verður fjölbreytt og áhugaverð. Sérstaklega er sjónum beint að samspili og samvinnu atvinnulífs og skóla. Þátttakendur koma víða að úr atvinnulífi, menntakerfi, stjórnmálum og stjórnsýslu. Sigríður Margrét Oddsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um viðamikla könnun sem lögð hefur verið fyrir forsvarsfólk fyrirtækja innan vébanda SA. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjvíkurborgar sitja fyrir svörum í pallborði hjá Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI. Helga Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Arion banka, Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Sesselja Ómarsdóttir, forstjóri Genis, ræða málin í pallborði hjá Sigtryggi Magnasyni, forstöðumanni miðlunarsviðs SA. Kastljósinu verður beint að samstarfi Kjarnafæði Norðlenska og VMA, starfinu í Elliðaárstöð og Bláa lóninu. Þá fáum við innlegg frá Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Sigurði Svavari Indriðasyni, leiðtoga bílgreina hjá Iðunni. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. Þau eru tilnefnd sem menntafyrirtæki ársins 2026
Auk spennandi dagskrár á Menntadegi atvinnulífsins verða menntaverðlaun atvinnulífsins einnig afhent. Í lok síðustu viku var greint frá því hvaða fyrirtæki hafa hlotið tilnefningu sem menntafyrirtæki ársins 2026. Í ár eru það BM Vallá, AÞ-Þrif og Krónan sem hljóta tilnefningu sem menntafyrirtæki ársins 2026. Fjölmargar vandaðar og metnaðarfullar umsóknir bárust dómnefndinni í ár og reyndist valið því ekki auðvelt. Þau fyrirtæki sem hlutu tilnefningu stóðu sérstaklega upp úr samkvæmt þeim viðmiðum sem sett voru fram í ár. Tilkynnt verður á Menntadegi atvinnulífsins 11. febrúar næstkomandi hvert þessara þriggja fyrirtækja hlýtur titilinn menntafyrirtæki ársins 2026, auk þess sem tilkynnt verður um sigurvegara menntasprotans 2026. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. ,,Planið er ekki alveg að virka''
„Við sendum forsætisráðherra erindi um miðjan janúar, þar sem við spurðumst fyrir um hvernig ríkisvaldið ætlaði að bregðast við þeim þrengingum sem atvinnuvegirnir sigla í gegnum þessa mánuðina, til hvaða aðgerða ætti að grípa. Þar stungum við upp á samstarfi, að okkur þætti skynsamlegt að setja á laggirnar formlegan þríhliða samráðsvettvang atvinnulífsins, verkalýðshreyfingar og stjórnvalda, sem hefði bolmagn og umboð til að móta hratt og örugglega aðgerðir í víðtæku samráði.“ Sagði Jón Ólafur Halldórsson formaður SA í viðtali við Morgunblaðið. Sömu leikreglur fyrir alla
,,Undanfarnar vikur hefur skapast lífleg umræða um loftslagsaðgerðir og þátttöku Íslands í sífellt flóknara regluverki á sviði loftslagsmála. Í þeirri umræðu reynir á jafnvægi milli metnaðar um samdrátt í losun og þess að aðgerðir séu raunhæfar, sanngjarnar og skili tilætluðum árangri í ólíkum aðstæðum ríkja. Það jafnvægi er ekki formsatriði heldur forsenda þess að loftslagsstefna virki í reynd.'' segir í nýlegri grein eftir Hugrúnu Elvarsdóttur, verkefnastjóra á málefnasviði SA.
Rætt um Menntadag atvinnulífsins í Morgunútvarpi Rásar 2
Arnar Birkir Dansson hagfræðingur hjá SA og Maj-Britt H. Briem verkefnastjóri Menntadags atvinnulífsins og lögmaður á vinnumarkaðssviði SA mættu í Morgunútvarp Rásar 2. Þar fóru þau yfir Menntadag atvinnulífsins og tilkynntu um þau fyrirtæki sem hlutu tilnefningu sem menntafyrirtækni ársins 2026. Hver eru forsenduákvæði kjarasamninga?
,,Í mars 2024 voru undirritaðir stefnumarkandi langtímakjarasamningar á almennum vinnumarkaði með gildistíma frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028. Sameiginlegt markmið samningsaðila við undirritun samninganna var að stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta með gerð langtímakjarasamninga. Aðilar sammæltust um að innifela forsenduákvæði í samningunum sem skilgreindu viðbrögð ef fyrirfram ákveðnar forsendur um verðlagsþróun myndu ekki ganga eftir.'' Metþátttaka í könnun SA og aðildarsamtaka fyrir Menntadag atvinnulífsins Undanfarnar vikur hafa Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök, staðið fyrir könnun um færniþörf framtíðarinnar og hvernig atvinnulífið getur best mætt henni. Samtökin færa kærar þakkir fyrir afar góða þátttöku. Sigríður Margrét Oddsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri SA mun fara yfir niðurstöðurnar í erindi sínu á Menntadegi atvinnulífsins 11. febrúar næstkomandi. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |