No images? Click here

SA minna á könnun meðal aðildarfyrirtækja

 

Samtök atvinnulífsins standa nú fyrir könnun meðal aðildarfyrirtækja um stöðu og horfur í rekstri fyrir komandi haust.

Með hliðsjón af því að reynt gæti á forsenduákvæði kjarasamninga í haust er mikilvægt fyrir SA að fá skýra mynd af stöðu fyrirtækja. Niðurstöður könnunarinnar verða mikilvægur grunnur að mati samtakanna og áframhaldandi vinnu við að tryggja forsendur kjarasamninganna.

Könnunin tekur aðeins nokkrar mínútur og öll svör eru meðhöndluð sem trúnaðarmál. Niðurstöður verða eingöngu birtar á samandregnu formi.

Við hvetjum öll aðildarfyrirtæki til að taka þátt.

 

Hagvaxtarhorfur Evrópu halda áfram að veikjast

 
 

Ársfjórðungslega birtir BusinessEurope hagvaxtarspá sína fyrir efnahagsþróun innan Evrópu og spá samtökin því að verg landsframleiðsla í löndum innan ESB muni aukast um 1,2% árið 2026, sem er lækkun um 0,1% sé tekið mið af hagvaxtarspá haustsins 2025. Hagvaxtarspá evrusvæðisins lækkar um 0,2% frá því sem fyrri spár gerðu ráð fyrir og er 1%. Búist er við hóflegum bata árið 2027 þegar hagvöxtur eykst í 1,4% innan ESB og 1,2% á evrusvæðinu. Horfurnar litast af spennu í alþjóðamálum í Mið-Austurlöndum, hækkandi orkuverði, hóflegum fjárfestingum og óvissu í alþjóðaviðskiptum.

Lestu fréttina á vef SA
 

Takið daginn frá: Ársfundur atvinnulífsins 1. október

 
 

Ársfundur atvinnulífsins verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 1. október.

Ársfundurinn er einn stærsti vettvangur landsins fyrir samtal atvinnulífs, stjórnvalda og annarra lykilhagaðila um stöðu efnahagsmála og framtíð íslensks samfélags.

Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu verða kynntar síðar. Þangað til hvetjum við félagsmenn og aðra áhugasama til að taka daginn frá.

 

Innleiðing reglna um orkunýtni verði sniðin að íslenskum aðstæðum

 
 

Samtök atvinnulífsins hafa sent inn umsögn um áform um frumvarp til laga um orkunýtni. SA styðja markmið um bætta orkunýtni og hagkvæma nýtingu orku en leggja áherslu á að innleiðing EES-reglna taki mið af sérstöðu íslenska orkukerfisins og gangi ekki lengra en skuldbindingar Íslands krefjast.

Í umsögninni er bent á að Ísland búi við nær alfarið endurnýjanlegt orkukerfi og lágt orkuverð sem geri aðstæður ólíkar þeim sem reglurnar voru upphaflega hannaðar fyrir. Því þurfi að gæta meðalhófs þannig að nýjar skyldur leiði ekki til íþyngjandi og óþarfrar reglubyrði eða skerði samkeppnishæfni fyrirtækja.

SA leggja jafnframt áherslu á að reglurnar styðji við orkuskipti, fjárfestingar og verðmætasköpun, tryggi nægan aðlögunartíma og forðist tvíverknað hjá fyrirtækjum sem þegar hafa innleitt viðurkennd orkustjórnunarkerfi.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Rjúfum vítahringinn: Fyrirlestur frá Hringferð

 
 

Fyrirlesturinn sem Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins, hélt á Hringferð SA, Rjúfum vítahringinn, er nú aðgengilegur á vef SA.

Horfðu á fyrirlesturinn
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe