Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Samtaka sigrumst við á verðbólgunni Hátt vaxtastig hefur íþyngjandi áhrif á heimilin og fyrirtækin í landinu. Vextir hækka hins vegar ekki í tómarúmi heldur eru þeir viðbrögð við efnahagslegum óstöðugleika sem leitt hefur til verðbólgu. Til þess að ná megi tökum á verðbólgunni, og þar af leiðandi lækka vexti, þurfa allir hlutaðeigandi að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Staða og framtíðarhorfur stærstu Samtök atvinnnulífsins í samstarfi við Seðlabanka Íslands og Gallup standa að ársfjórðungslegum mælingum á stöðu og framtíðarhorfum forsvarsmanna stærstu fyrirtækja landsins. Mælingin er afar veigamikið innlegg í greiningu á stöðu og framtíðarhorfum í íslensku efnahagslífi og mikilvægt að sem flest fyrirtæki taki þátt í mælingunni hverju sinni. Næsta mæling fer í loftið á næstu dögum og viljum við hvetja stjórnendur þeirra fyrirtækja sem lenda í úrtaki hjá Gallup að gefa sér nokkrar mínútur til að svara könnuninni. Góð þátttaka skiptir máli svo að niðurstöðurnar gefi sem réttasta mynd af efnahagsumhverfinu. Framfaramálin oft ávextir kjarasamninga Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði, skrifar um fjármögnun fimmtu menntastoðarinnar og endurskoðun laga um framhaldsfræðslu. „Það verður að tryggja að hægt verði að mæta þörfum allra þeirra hópa sem um ræðir, bæði fólks á vinnumarkaði, innflytjenda og fatlaðs fólks. Framhaldsfræðslukerfið allt er í hættu ef aðeins á að útvíkka hópinn en ekki tryggja viðeigandi fjármögnun verkefna.“ Menntadagur atvinnulífsins fer Fundurinn er haldinn í Hörpu miðvikudaginn 14. febrúar kl. 09:00 - 10:30. Yfirskrift menntadagsins í ár er Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins? Á fundinum kynnum við uppfærðar niðurstöður könnunar Gallup á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar. Rödd atvinnulífsins fær að heyrast sem fyrr og ráðherrar málaflokksins mæta í umræður þar sem færniþörf er í brennidepli. Þá verða hin árlegu menntaverðlaun atvinnulífsins veitt af forseta Íslands.
Molinn Til að aðilar vinnumarkaðarins geti stuðlað að markmiðum um efnahagslegan stöðugleika þurfa launabreytingar að rúmast innan svigrúms í hagkerfinu. Fleira þarf hins vegar að koma til. Í fyrstu kjarasamningum samningalotunnar þarf að móta heildstæða launastefnu sem sátt ríkir um svo hægt sé að fylgja henni eftir í þeim samningum sem sigla í kjölfarið. Göfug markmið mega sín lítils verði ekki hægt að framfylgja launastefnunni. |