|
Mánudagsmolar No images? Click here Rjúfum vítahringinn: Reykjavík, Ísafjörður og Grindavík
Síðustu fundirnir á Hringferð SA 2026: Rjúfum vítahringinn verða haldnir í vikunni. Á miðvikudaginn 10. júní stendur SA fyrir morgunfundi á Grand Hótel Reykjavík frá kl. 8:30–10:00. Í pallborði verða:
Á fimmtudag verður haldinn fundur í Rögnvaldarsal í Edinborgarhúsiu á Ísafirði og á föstudag á Bryggjunni í Grindavík. Fundirnir eru opnir öllum áhugasömum og hvetjum við fólk til að taka þátt. ETS-kerfið og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs
Átján forstjórar úr hópi loftslagsleiðtoga Festu, ásamt framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og stjórnarformanni Festu, hafa sent frá sér sameiginlega ályktun þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að beita sér af meiri þunga í þróun og framkvæmd ETS-kerfis Evrópusambandsins (viðskiptakerfis með losunarheimildir). Í ályktuninni er lögð áhersla á að breytingar á ETS-kerfinu hafi veruleg áhrif á samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og mikilvægt sé að íslensk sjónarmið komi skýrt fram við mótun regluverksins. Jafnframt er kallað eftir aukinni kynningu á þeim tækifærum sem felast í Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins fyrir íslenskt atvinnulíf. Arnari og Sigríði Margréti þakkað fyrir áratuga starf
Ársfundur Landsmenntar, starfsmenntasjóðs Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni, var haldinn í Húsi atvinnulífsins 4. júní. Á fundinum var farið yfir starfsemi sjóðsins á liðnu ári og fjallað um mikilvægi starfs-, sí- og endurmenntunar fyrir íslenskan vinnumarkað. Sérstakar þakkir voru færðar Arnari Sigurmundssyni og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur sem láta nú af störfum í stjórn Landsmenntar eftir áratugalangt framlag fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins. Þau hafa unnið mikilvægt starf í þágu starfsmenntunar og þróunar mannauðs á íslenskum vinnumarkaði. Inn í stjórnina koma Lilja Björg Arngrímsdóttir, mannauðsstjóri Vinnslustöðvarinnar, og Ólína Laxdal, hótelstjóri á Hótel Hildebrand. Kjarasamningar til umræðu í Speglinum
Anna Hrefna Ingimundardóttir,, aðstoðarframkvæmdstóri SA, ræddi þær blikur sem eru á lofti í efnahagsmálum á landinu og forsenduákvæði kjarasamninga í Speglinum á RÚV í síðustu viku. Vernda landaheitið Ísland/Iceland
Undirritað hefur verið samkomulag um samstarf stjórnvalda og atvinnulífs um vernd og vöktun landaheitisins Ísland/Iceland á erlendum mörkuðum. Markmiðið er að verja ímynd Íslands og hagsmuni íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu vara og þjónustu. Að samkomulaginu standa utanríkisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Hugverkastofan, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofa. „Landaheitið Ísland hefur verulegt efnahagslegt gildi fyrir íslenskt atvinnulíf. Það er því mikilvægt að standa vörð um landaheitið og tryggja að notkun þess styðji við samkeppnishæfni og verðmætasköpun íslensks útflutnings,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Rjúfum vítahringinn á Rás 2
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, var í beinni útsendingru frá Akureyri í Morgunútvarpi Rásar síðasta fimmtudag. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |