|
No images? Click here Fleiri andvígir aðild en fylgjandi í öllum atvinnugreinum
Ný könnun Gallup sýnir að andstaða við aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist meðal aðildarfyrirtækja SA. 66% fyrirtækja eru nú andvíg aðild, samanborið við 56% í síðustu könnun. Frekara niðurbrot sýnir að fleiri fyrirtæki eru andvíg en hlynnt aðild í öllum atvinnugreinum. Öflugur vinnumarkaður þar sem allir fá að njóta sín
Samtök atvinnulífsins hafa ásamt stjórnvöldum, Samtökunum ’78 og heildarsamtökum launafólks undirritað viljayfirlýsingu um aukið jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði. „Öflugur vinnumarkaður byggir á því að allir fái að njóta sín. Með þessu samstarfi erum við að stíga mikilvægt skref fyrir jafnrétti á vinnumarkaði, að fjölbreytileiki sé metinn að verðleikum og að starfsfólk upplifi öryggi og virðingu á sínum vinnustað,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sem undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd SA. Framkvæmdastjóri við Rauða borðið
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, var gestur Gunnars Smára Egilssonar og Sigurjóns M. Egilssonar við Rauða borðið á Samstöðinni ásamt Daða Má Kristórferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og Höllu Gunnarsdóttur, formanni VR. Takið daginn frá: Ársfundur atvinnulífsins 1. október
Ársfundur atvinnulífsins verður haldinn í Hörpu fimmtudaginn 1. október. Ársfundurinn er einn stærsti vettvangur landsins fyrir samtal atvinnulífs, stjórnvalda og annarra lykilhagaðila um stöðu efnahagsmála og framtíð íslensks samfélags. Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu verða kynntar síðar. Þangað til hvetjum við félagsmenn og aðra áhugasama til að taka daginn frá. Fyrirsjáanleiki lykill að öflugu nýsköpunarumhverfi
Samtök atvinnulífsins fagna áformum um að bæta stjórnsýslu og auka skýrleika í stuðningskerfi við rannsóknir og þróun. Kerfið hefur reynst vel og mikilvægt er að breytingar styrki hvata fyrirtækja til nýsköpunar. Í umsögn SA er lögð áhersla á að skilyrði skattfrádráttar séu skýr, fyrirsjáanleg og samræmist alþjóðlegum viðmiðum án óþarfa gullhúðunar. SA varar jafnframt við heildarþaki á úrræðið eða lækkun stuðnings, enda gæti slíkt aukið óvissu og dregið úr fjárfestingu í rannsóknum og þróun. Öflugt stuðningsumhverfi nýsköpunar er mikilvægt fyrir framleiðni, fjölbreyttari útflutning og áframhaldandi lífskjarasókn. Framkvæmdastjóri í Einni pælingu
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, var gestur Þórarins Hjartarsonar í hlaðvarpinu Einni pælingu og ræddi um Evrópusambandið, stjórnmálin, skattahækkanir, heilbrigðiskerfið, verðbólgu og kjarasamninga. Fjölbreyttir vinnustaðir - öflugra atvinnulíf
„Mikil gróska er á íslenskum vinnumarkaði og fjölbreytileiki eykst með ári hverju. Fjölbreytileikinn endurspeglast m.a. í kyni starfsfólks, kynhneigð, starfsfólki af erlendum uppruna, aldri og starfsfólki með fötlun eða skerta starfsgetu. Samtök atvinnulífsins (SA) hafa lengi bent á að aukinn fjölbreytileiki styrki vinnustaði og auki samkeppnishæfni þeirra,“ skrifar Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, í grein sinni á vef SA. Rjúfum vítahringinn: Fyrirlestur frá Hringferð
Fyrirlesturinn sem Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins, hélt á Hringferð SA, Rjúfum vítahringinn, er nú aðgengilegur á vef SA. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |