|
Mánudagsmolar No images? Click here Hver eru forsenduákvæði kjarasamninga?
,,Í mars 2024 voru undirritaðir stefnumarkandi langtímakjarasamningar á almennum vinnumarkaði með gildistíma frá 1. febrúar 2024 til 31. janúar 2028. Sameiginlegt markmið samningsaðila við undirritun samninganna var að stuðla að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta með gerð langtímakjarasamninga. Aðilar sammæltust um að innifela forsenduákvæði í samningunum sem skilgreindu viðbrögð ef fyrirfram ákveðnar forsendur um verðlagsþróun myndu ekki ganga eftir.'' Atvinnulífið jákvætt gagnvart rýnilöggjöf um erlendar fjárfestingar
„Samtökin telja þær breytingar sem gerðar hafa verið á fyrirliggjandi frumvarpi eftir samráð vera skref í rétta átt en vilja þó koma á framfæri athugasemd um 5. gr. frumvarpsins sem þau telja nauðsynlegt að verði afmörkuð nánar áður en frumvarpið verður að lögum,“ segir í umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Samorku og Viðskiptaráðs um drög að rýnilöggjöf um erlendar fjárfestingar. Varað við víðtækum heimildum ráðherra
,,Í frumvarpinu er ráðherra veitt víðtækt vald til reglugerðarsetningar. Samtökin gjalda varhug við svo víðtæku framsali lagasetningarvalds til ráðherra vegna ýmissa ákvarðana sem geta haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir rekstraraðila. Samtökin ítreka mikilvægi þess að eignar- og atvinnuréttindum verði ekki sett takmörk með stjórnvaldsfyrirmælum sem byggja á opnum eða almennt orðuðum ákvæðum laga. Eigi ekki að fjalla um slíkar takmarkanir í fyrirhuguðum lögum telja samtökin það vera eðlilega kröfu að drög að umræddum stjórnvaldsfyrirmælum liggi fyrir samhliða framlagningu frumvarpsins í þágu gagnsæis og skilvirks samráðs við greinina. Samtökin telja þannig mikilvægt að hagaðilar fái innsýn í gerð stjórnvaldsfyrirmæla sem geta haft grundvallaráhrif á rekstur fyrirtækja svo að taka megi afstöðu til áhrifa þeirra og efnis, t.a.m. vegna reglugerðar um afmörkun smitvarnasvæða og annarra fyrirmæla sem geta haft umtalsverð áhrif á rekstrarforsendur tiltekinna fyrirtækja.'' segir í umsögn Samtaka atvinnulífsins um drög að frumvarpi til laga um lagareldi. Skortur á heildarsýn og fyrirsjáanleika
,,Samtökin leggja áherslu á að heildarendurskoðun laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki verði nýtt sem tækifæri til að efla en ekki veikja það kerfi sem hefur reynst eitt áhrifaríkasta efnahagslega úrræði stjórnvalda undanfarinna ára til að auka verðmætasköpun og útflutningstekjur Íslands. Óumdeilt er að öflugir skattahvatar undanfarinna ára hafa byggt undir nýja og sterka útflutningsstoð sem stefnir í að verða sú verðmætasta innan nokkurra ára. Frumvarpið felur í sér jákvæð skref, einkum hvað varðar lengri staðfestingartíma verkefna, en jafnframt felur frumvarpið í sér ákvæði sem auka ófyrirsjáanleika, þrengja að eðlilegum nýsköpunarverkefnum og geta dregið úr vilja fyrirtækja og fjárfesta til að ráðast í ný verkefni hér á landi. Samtökin hvetja Alþingi til að endurskoða frumvarpið í ljósi framangreindra athugasemda og tryggja að breytingar á framkvæmd R&Þ-kerfisins styðji áfram við fjárfestingu í nýsköpun, verðmætasköpun og samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.'' segir í umsögn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki Spennandi dagskrá á Menntadegi atvinnulífsins - Skráning í fullum gangi
Skráning á Menntadag atvinnulífsins 11. febrúar er í fullum gangi. Dagurinn er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar. Dagskrá Menntadags atvinnulífsins verður fjölbreytt og áhugaverð. Sérstaklega er sjónum beint að samspili og samvinnu atvinnulífs og skóla. Þátttakendur koma víða að úr atvinnulífi, menntakerfi, stjórnmálum og stjórnsýslu. Sigríður Margrét Oddsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um viðamikla könnun sem lögð hefur verið fyrir forsvarsfólk fyrirtækja innan vébanda SA. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Logi Einarsson, menningar- og háskólaráðherra og Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg sitja fyrir svörum í pallborði hjá Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI. Helga Halldórsdóttir, mannauðsstjóri Arion banka, Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ ræða málin í pallborði hjá Sigtryggi Magnasyni, forstöðumanni miðlunarsviðs SA. Kastljósinu verður beint að samstarfi Norðlenska og VMA, starfinu í Elliðaárstöð og Bláa lóninu. Þá fáum við örerindi frá Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum og Sigurði Svavari Indriðasyni,leiðtoga bílgreina hjá Iðunni. Síðast en ekki síst verður tilkynnt um menntafyrirtæki ársins og menntasprota. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. Tilnefningar til menntaverðlauna atvinnulífsins tilkynntar næsta miðvikudag Tilkynnt verður um þau fyrirtæki sem hljóta tilnefningu til Menntaverðlauna atvinnulífsins næstkomandi miðvikudag. Fjöldi vandaðra og öflugra umsókna barst í ár og færa Samtök atvinnulífsins fyrirtækjum þakkir fyrir frábærar umsóknir og það metnaðarfulla fræðslustarf sem þau sinna. Metþátttaka í könnun SA og aðildarsamtaka fyrir Menntadag atvinnulífsins Undanfarnar vikur hafa Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök, staðið fyrir könnun um færniþörf framtíðarinnar og hvernig atvinnulífið getur best mætt henni. Samtökin færa kærar þakkir fyrir afar góða þátttöku. Sigríður Margrét Oddsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri SA mun fara yfir niðurstöðurnar í erindi sínu á Menntadegi atvinnulífsins 11. febrúar næstkomandi. Ágreiningur við VR vegna uppfærslu launataflna Ágreiningur er uppi við nokkur stéttarfélög um með hvaða hætti uppfæra skuli launatöflur kjarasamninga frá 1. janúar 2026. Starfsgreinasamband Íslands, Efling og Samiðn hafa uppfært launatöflur með sama hætti og Samtök atvinnulífsins en VR, RSÍ, VM og Matvís telja að vegna framkvæmdar kauptaxtaauka 1. apríl 2025 eigi launatöflur frá 1. janúar 2026 að vera um 0,03% hærri en ella. Félögin hafa birt hærri launatöflur sem því nemur og hefur mál vegna þessa ágreinings verið þingfest í Félagsdómi. SA mæla með því að aðildarfyrirtæki samtakanna styðjist við launatöflur SA á meðan beðið er niðurstöðu Félagsdóms. Umhverfisviðurkenning Kuðungsins Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur nú auglýst eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenningarinnar Kuðungsins. Tilnefningafrestur er til 10. mars. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |