|
Mánudagsmolar No images? Click here Félagsdómur staðfestir túlkun SA
Félagsdómur hefur með dómi sínum í dag staðfest með hvaða hætti kauptaxtar kjarasamninga skulu hækka 1. janúar 2026. VR taldi að kauptaxtar ættu að taka meiri hækkun en leiða mátti af skýrum ákvæðum kjarasamninga og hafði fengið Matvís, RSÍ og VM til að fylgja sömu línu. Félagsdómur staðfesti hins vegar að kauptaxtar sem SA hafa birt í kaupgjaldsskrá frá 1. janúar 2026 eru réttir. Enginn ágreiningur var við SGS, Eflingu eða Samiðn um rétta hækkun kauptaxta.
BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru afhend við hátíðlega athöfn á Menntadegi atvinnulífsins á Hilton Reykjavík Nordica í gær. Metþátttaka var í deginum og fullt út úr dyrum. BM Vallá er Menntafyrirtæki ársins 2026. Atlas Primer er Menntasproti atvinnulífsins 2026. AÞ Þrif og Krónan voru auk BM Vallár tilnefnd og hlutu sérstakar viðurkenningar. Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?
Sigríður Margrét Oddsdóttir hélt sitt síðasta ávarp sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins á Menntadegi atvinnulífsins, síðastliðinn miðvikudag. Í erindi sínu fór hún yfir niðurstöður könnunar SA og Gallup sem gerð var meðal félagsmanna SA. Samtök atvinnulífsins þakka Sigríði Margréti hjartanlega fyrir framlag sitt og óska henni velfarnaðar í starfi sínu sem forstjóri Bláa lónsins. Stjórnvöld á villigötum
„Ég hef velt fyrir mér hvort þau hafi ekki áttað sig á hvaða afleiðingar þetta mun hafa að lögfesta breytingarnar þegar lagt var upp í þessa vegferð. En nú hafa birst fjölmörg varnaðarorð sem þau hafa ákveðið að hlusta ekki á og við teljum það mjög alvarlegt,“ sagði Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs SA, í samtali við Sýn. Ekki megi misnota óumdeilda þörf til uppbyggingar til að réttlæta almennar skattahækkanir
„Samtökin leggja áherslu á að verkefnum í samgönguáætlun sé forgangsraðað þannig að fyrst verði ráðist í þau verkefni sem brýnust eru, þ.e. sem skila mestum þjóðhagslegum ávinningi. Í þeirri forgangsröðun þarf að tryggja að innviðir í vegakerfinu verði styrktir og viðhald ekki látið sitja á hakanum,“ segir í umsögn SA um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040. Samtökin vara við því að óumdeild þörf fyrir innviðauppbyggingu sé misnotuð í opinberri umræðu til að réttlæta almennar skattahækkanir. Eðlilegt að bótatímabil sé fært í svipað horf og þekkist hjá nágrannalöndum „Samtökin taka undir mikilvægi þess að stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi sem er útsettur fyrir langtímaatvinnuleysi – áhersla atvinnuleysistryggingakerfisins á að vera á aðstoð við endurkomu atvinnuleitenda á vinnumarkaðinn. Rannsóknir hafa sýnt fram á að meðaltímalengd atvinnuleysis helst í hendur við tímalengd atvinnuleysisbóta, en því lengur sem einstaklingar eru fjarverandi af vinnumarkaði þeim mun erfiðari getur endurkoma reynst,“ segir í umsögn SA, SVÞ, SI, SFS, SAF, SFF og Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir. Styðja markmið en leggja áherslu á skýrt áhrifamat og gagnsætt samráð
Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar hafa skilað umsögn um frumvarp til innleiðingar á tilskipun um aukna notkun endurnýjanlegrar orku. Samtökin styðja markmið um orkuskipti og sjálfbæra orkuöflun en leggja áherslu á skýrt áhrifamat og gagnsætt samráð. Samtökin telja nauðsynlegt að íblöndunarkröfur eldsneytis taki mið af kostnaðar- og framboðsáskorunum og íslenskum aðstæðum, svo sem háu hlutfalli heimahleðslu rafbíla. Þá er enn fremur lögð áhersla á einföldun leyfisveitinga. Samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja á mikið undir að hvoru tveggja sé vel leyst af hendi. Innviðafélag þarfnast nánari útfærslu
„Samtökin telja mikilvægt að stjórnvöld móti og útfæri nánar hlutverk félagsins og verkaskiptingu á skýrari hátt áður en málið er framlagt á þingi. Réttast væri að málið kæmi að nýju inn í samráðsgátt þegar það hefur verið nánar útfært þannig hægt væri að taka afstöðu til endanlegrar útfærslu á meðan málið er enn á samráðsstigi,“ segir í umsögn SA um drög að frumvarpi til laga um innviðafélag. Styðja að Hamarsvirkjun verði færð í biðflokk
„Samtökin fagna því að aukinn kraftur hafi verið settur í málaflokkinn. Nú þarf kné að fylgja kviði, öflun raforku er eitt af grundvallarhagsmunamálum íslensks samfélags. Tafir í uppbyggingu nýrrar raforkuframleiðslu hafa þegar haft verulegan þjóðhagslegan kostnað í för með sér og áframhaldandi óvissa getur grafið undan orkuöryggi, samkeppnishæfni atvinnulífsins og orkuskiptum,“ segir í umsögn SA um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða. Opinn fundur um samkeppni í opinberum útboðum Fimmtudaginn 19. febrúar efna Samkeppniseftirlitið, Stjórnarráðið og OECD til opins fundar um samkeppni í opinberum útboðum og leiðir til að opna markaði og bæta regluverk. Auk umræðna verður á fundinum kynnt íslensk útgáfa af nýlega birtum leiðbeiningum OECD um varnir gegn samráði í útboðum. Einnig verða kynntar leiðbeiningar OECD um samkeppnismat á regluverki stjórnvalda. Umhverfisviðurkenning Kuðungsins Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur nú auglýst eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenningarinnar Kuðungsins. Tilnefningafrestur er til 10. mars. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |