|
Mánudagsmolar No images? Click here „Ísland er í einstöku sóknarfæri á heimsvísu“
„Ísland er í einstöku sóknarfæri á heimsvísu, við erum rík af auðlindum, hugviti og grænni orku. Við erum vel staðsett að teknu tilliti til alþjóðaviðskipta við öflugustu hagkerfi heimsins. Menning okkar styður við hvort tveggja jöfn tækifæri og framþróun. Á hundrað árum fórum við frá fátækt til forystu og við getum vel varðveitt þau lífsgæði, þá vinnu, sem fyrri kynslóðir lögðu á sig til að tryggja hagsæld og
tækifæri íslensku þjóðarinnar. Tryggja að förinni til forystu verði haldið áfram,“ segir Jón Ólafur, formaður Samtaka atvinnulífsins, í hugleiðingum sínum sem birtust í Viðskiptablaðinu í liðinni viku. Tímamót: Sigríður Margrét hættir sem framkvæmdastjóri í febrúar
Sigríður Margrét Oddsdóttir hættir sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í febrúar. Hún hefur verið ráðin forstjóri Bláa lónsins hf. og hefur þar störf hjá 16. mars. „Samtök atvinnulífsins hafa undir stjórn Sigríðar Margrétar mótað skýra stefnu og vinna nú eftir fimm ára málefnadagatali, samtökin hafa gert langtíma kjarasamninga, byggt upp traust sambönd og átt góð samskipti við alla sína haghafa. Samtökin hafa auk þess stóreflt hagsmunagæslu sína í Brussel, fjárhagur samtakanna er sterkur og innan samtakanna er valinn maður í hverju rúmi, starfsfólk og stjórnendur sem íslenskt atvinnulíf getur verið stolt af að hafa í framvarðasveitinni,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA. „Um leið og við þökkum Sigríði Margréti fyrir samstarfið og góð störf í þágu samtakanna sendum við henni, Grími og Bláa Lóninu heillaóskir á þessum tímamótum.“ Skattadagurinn er á fimmtudag Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins fer fram fimmtudaginn 15. janúar 2025 klukkan 8:30-10:00 í Silfurbergi, Hörpu. Léttur morgunverður er frá klukkan 8:00. Þátttakendur eru: Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður og meðeigandi Deloitte Legal, Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins og Orri Hauksson, stjórnarformaður First Water. Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs stjórnar fundinum. Skráning á Menntadag atvinnulífsins er hafin
Skráning á Menntadag atvinnulífsins 11. febrúar er hafin. Dagurinn er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. SA gagnrýna víðtækar heimildir í frumvarpi heilbrigðisráðherra
Samtök atvinnulífsins hafa skilað umsögn um frumvarp sem ætlað er að styrkja viðbrögð stjórnvalda við lyfjaskorti. Samtökin taka undir mikilvægi þess að tryggja aðgengi sjúklinga að lyfjum en gagnrýna að frumvarpið veiti Lyfjastofnun of víðtækar og matskenndar heimildir. Að mati SA ganga ýmis ákvæði lengra en nauðsyn krefur og feli í sér óhóflegt inngrip í atvinnufrelsi fyrirtækja á lyfjamarkaði. Menntatorg atvinnulífsins - Tækifæri fyrir fyrirtækið þitt?
Á Menntadegi atvinnulífsins verður sérstakt markaðstorg þar sem fjölbreytt fyrirtæki geta miðlað árangri eða þjónustu sinni í fræðslu- og menntamálum fyrir gestum dagsins. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar. Hvað er boðið upp á?
Takmarkað pláss er í boði – við hvetjum áhugasöm fyrirtæki til þess að sækja um. Frestur til að tilnefna til Menntaverðlauna atvinnulífsins rennur út eftir viku
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Menntadegi atvinnulífsins sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica 11. febrúar 2026. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki ársins og menntasproti ársins. Menntadagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |