Mánudagsmolar 21. september | Upplýsingafundur um stöðu kjarasamninga | Atvinnulífið býr sig undir fækkun starfa | Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins | Skráning á Ársfund

No images? Click here

Ársfundur atvinnulífsins: Sókn er besta vörnin

 

Verðbólga er þrálát, vextir háir og óvissa ríkir á vinnumarkaði. Ný könnun SA og Seðlabankans sýnir að atvinnurekendur sjá fram á dekkri horfur, færri ráðningar og áframhaldandi þrýsting á rekstur fyrirtækja á Íslandi.

Við þessar aðstæður dugir ekki að bíða. Ísland þarf að sækja fram með umbótum sem auka verðmætasköpun, styrkja samkeppnishæfnina og skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu, lægri vexti og betri lífskjör.

Tækifærin eru til staðar. Ætlum við að nýta þau?

Komdu á Ársfund atvinnulífsins í Hörpu þann 1. október.

Á fundinum stíga á svið:
Baldvin Þorsteinsson | Birna Ósk Einarsdóttir | Bjarni Benediktsson | Bryndís Hlöðversdóttir | Gylfi Jónu Arnbjarnarson | Jón Ólafur Halldórsson | Kristrún Frostadóttir | Rannveig Rist | Skúli Mogensen | Tómas Sigurðsson | Þorsteinn Víglundsson

Dagskráin stendur frá kl. 15-17 og verður húsið opnað kl. 14.30. Að lokinni dagskrá verður boðið til móttöku í Björtuloftum í Hörpu þar sem verða léttar veitingar og ljúfir tónar.

Skráðu þig á Ársfund atvinnulífsins
 

Upplýsingafundur vegna forsenduákvæða kjarasamninga 

 

Á morgun, þriðjudaginn 22. september, verður haldinn upplýsingafundur vegna forsenduákvæða kjarasamninga.

Fundurinn er í streymi og stendur frá kl. 12.20-13.00.

Á fundinum fer Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins yfir stöðuna og svarar spurningum.

 

Tengill á fundinn sem hefst kl. 12:20
 

Óskað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026

 

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand frá kl. 13:00–15:15 og verður skráning auglýst fljótlega.

Búið er að opna fyrir tilnefningar til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfis- og loftslagsmálum og sýnir í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun.


Frestur til að senda inn tilnefningu er til og með 10. október næstkomandi.

Tilnefndu Umhverfisfyrirtæki ársins 2026
 

Fyrirtæki búa sig undir fækkun starfa

 

Stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður í efnahagslífinu áfram slæmar og væntingar þeirra til næstu sex mánaða hafa ekki verið lægri frá árinu 2018. Um 34% fyrirtækja sjá fram á fækkun starfsfólks næsta hálfa árið en aðeins 9% búast við fjölgun.

Veik innlend eftirspurn og erfið rekstrarskilyrði setja jafnframt mark sitt á niðurstöðurnar. Fjögur af hverjum tíu fyrirtækjum búast við minni hagnaði í ár en í fyrra og verð á aðföngum er talið munu hækka hraðar en verð á eigin vörum og þjónustu.

Lestu fréttina á vef SA
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Vorskýrsla KTN 2026
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe