Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Stöðugleikarnir Verkefnið er ekki búið Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu þannig sitt af mörkum til efnahagslegs stöðugleika komandi ára. Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta. Á þessum grunni hefja Samtök atvinnulífsins
eftirfylgni við kjarasamninga undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir. Stöðugleikarnir fara fram með hækkandi sól og samanstanda af opnum fundum fyrir atvinnulíf, stjórnvöld og almenning og fjölbreyttu miðlunarefni og samtali. Þá verður bætt í upplýsingagjöf til aðildarfyrirtækja SA um tæknileg útfærsluatriði kjarasamninganna. Verum samtaka um aukna hagsæld. Viltu vera með okkur á Akureyri? Akureyri | Hamraborg, Hofi | 29. apríl | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður í boði Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, og Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þá flytja Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa og Vilborg Jóhannsdóttir, eigandi Bravo ehf. og kaupmaður í Centro á Akureyri, hugvekjur. Nauðsynlegt er að skrá sig hér: Viltu vera með okkur í Reykjavík?Reykjavík | Norðurljós, Harpa | 30. apríl | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður í boði Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þá flytja Finnur Oddsson, forstjóri Haga, og Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, hugvekjur. Nauðsynlegt er að skrá sig hér: Hagnýtur upplýsingafundur um launavinnslu Fjarfundur | 22. apríl | 12:30 – 13:45 Upplýsingafundur um nýgerða kjarasamninga verður haldinn með Zoom fjarfundi þriðjudaginn 23. apríl kl. 12:30 - 13:45. Þar munu sérfræðingar Samtaka atvinnulífsins fara yfir allar helstu breytingar sem gerðar voru í Stöðugleikasamningunum og sitja fyrir svörum. Fundurinn er fyrst og fremst ætlaður þeim sem hafa með laun og launavinnslu að gera í fyrirtækinu og því tilvalið að framsenda fundarboðið á viðeigandi aðila. Við hlökkum til að heyra frá ykkur og veita ykkur ráðgjöf. Nauðsynlegt er að skrá sig hér: |