Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Stöðugleikarnir hefjast í dag Í dag hefja Samtök atvinnulífsins eftirfylgni sína við Stöðugleikasamninginn undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir. Þar mun atvinnulífið ásamt stéttarfélögum á almennum vinnumarkaði og stjórnvöldum, leggja línurnar um hvernig Stöðugleikasamningnum skuli fylgt eftir. Hvernig tryggja megi að efnahagslegur stöðugleiki náist. Við hefjum leika á Akureyri í dag Akureyri | Hamraborg, Hofi | 29. apríl | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður í boði Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga, og Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og varaformaður SA, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Nauðsynlegt er að skrá sig hér: Leggðu þitt af mörkum í Reykjavík á morgunReykjavík | Norðurljós, Harpa | 30. apríl | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður í boðiSigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, og Jónína Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Coripharma, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Nauðsynlegt er að skrá sig hér: Aðrir sálmar Styrkleikar í öndvegi Heiðrún Björk Gísladóttir, lögmaður á málefnasviði Samtaka atvinnulífsins og varaformaður stjórnar Virk, skrifar um breytingar á örorkulífeyriskerfinu. „Með réttum hvötum aukast þannig líkur á því að fólk með skerta starfsgetu verði virkt á vinnumarkaði og þurfi ekki að hafa áhyggjur af framfærslu með sama hætti og í núgildandi kerfi. Á sama tíma er hlúð sérstaklega að þeim hópi sem byggir framfærslu sína að öllu leyti á örorkulífeyrisgreiðslum.“ CSRD fundaröð SA og PodiumÞriðjudaginn 7. maí verður fjórði og síðasti fundur morgunfundaraðar SA og Podium ehf. um sjálfbærnilöggjöf CSRD og innleiðingu ESRS staðalsins . Efni fundarins verður ESRS G1 - Stjórnarhættir.
Norrænt samstarfsnet um gervigreind og færni á vinnumarkaði Dagana 8-9 apríl sl. hittust fulltrúar frá norrænu samstarfsneti um fullorðinsfræðslu (NVL) í Reykjavík. NVL er norrænt tengslanet um nám fullorðinna og norrænn vettvangur fullorðinsfræðslu þar sem athygli er beint að nýsköpun, miðlun og árangri. NVL hvetur til samræðu og þverfaglegs samstarfs á milli ólíkra tengslaneta, kemur á nýjum netum og eflir framlag þeirra til norræns samstarfs. Molinn „Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lagt til að vaxtabótakerfið verði lagt niður í heild sinni af fjölmörgum ástæðum sem lesa má um í ofangreindri skýrslu, en fyrst og fremst vegna þess að slíkt kerfi er ekki skilvirk leið til að aðstoða fólk við að fjárfesta í eigin húsnæði. Því telja samtökin jákvætt að stjórnvöld hafi markvisst dregið úr áherslu húsnæðisstuðnings í gegnum vaxtabótakerfið á umliðnum árum. Þá má færa fyrir því rök að slíkur stuðningur sé til þess fallinn að torvelda miðlun peningastefnunnar, sem verður að teljast sérstaklega óæskilegt um þessar mundir. Einnig getur hann stuðlað að hækkun húsnæðisverðs þar sem hann beinist að eftirspurnarhlið húsnæðismarkaðarins en ekki framboðshliðinni, þar sem vandinn liggur.“ -Umsögn SA um breytingar á lögum um tekjuskatt varðandi barnabætur og sérstakan vaxtastuðning, 23. apríl 2024. |