Mánudagsmolar

No images? Click here

„Ríkisútgjöld á sjálfstýringu eru aldrei góð hugmynd“

 
 

Samtök atvinnulífsins boðuðu til fundar á Hilton Reykjavík Nordica, í dag 9. mars, þar sem umræðuefnið var áhrif vísitölutengingar bóta á vinnumarkað og ríkisfjármál. Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, stjórnaði fundinum. Frummælendur voru Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, sem fjallaði um áhrif tengingarinnar á ríkisfjármál, og Oddur Ingimarsson, geðlæknir, sem fjallaði um samspil bóta og atvinnu.

Lilja Hrund Lúðvíksdóttir, lögfræðingur á málefnasviði SA, stjórnaði pallborði þar sem þátttakendur voru Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, Gylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, Konráð Guðjónsson, hagfræðingur hjá Kontext, Oddur Steinarsson, heimilislæknir og varaformaður Læknafélags Íslands, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.

 

Hægt er horfa á erindi og pallborð í umfjöllun á vef SA auk fundarins í heild sinni.

Lestu frétt á vef Viðskiptablaðsins
Lestu frétt á vef Morgunblaðsins
Nánari umfjöllun á vef SA
 

Fulltrúar atvinnulífsins ræddu ETS-kerfið í Brussel 

 
 

Samtök atvinnulífsins, SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu og Samtök ferðaþjónustunnar fóru ásamt fulltrúum Eimskips og Icelandair til Brussel og funduðu með aðilum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins dagana 3.–5. mars.

Tilgangur ferðarinnar var að koma sjónarmiðum og hagsmunum íslensks atvinnulífs á framfæri í tengslum við endurskoðun framkvæmdastjórnar ESB á á ETS-kerfinu fyrir flug og sjóflutninga sem fer fram í sumar.

Lestu meira á vef SA
 

Forgangsatriðin að ná niður verðbólgu, vaxtastigi og auka samkeppnishæfni

 
 

„Fyrirtækin í landinu hafa verið með aðra forgangsröðun á undanförnum misserum líkt og ríkisstjórnin boðaði, að takast á við verðbólguna, ná niður vaxtastiginu, vinna að aukinni samkeppnishæfni atvinnulífsins. Þetta eru forgangsatriðin sem við höfum viljað leggja áherslu á,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í umfjöllun fréttastofu RÚV um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu.
 

Lestu fréttina á vef RÚV
 

SA og ASÍ kalla eftir skýrara hlutverki Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

 
 

Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hafa sent inn sameiginlega umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026–2029. Samtökin fagna því að sett sé fram heildstæð framkvæmdaáætlun og lýsa vilja til virks samráðs við stjórnvöld um framgang hennar.

SA og ASÍ telja að með nánara samstarfi og markvissu samráði megi styrkja innviði fræðslu fyrir innflytjendur og stuðla að aukinni þátttöku þeirra í námi, starfi og samfélagi.
 

Lestu meira á vef SA
 

SA fagna afhúðun

 
 

SA telja það mikilvægt framfaraskref að taka upp stærðarflokkun ESB. Smærri fyrirtæki hér á landi hafa um árabil sætt þyngri kvöðum en sambærileg fyrirtæki í Evrópu vegna svonefndrar gullhúðunar við innleiðingu EES-reglna. Samtökin fagna því að stjórnvöld sýni frumkvæði til afhúðunar og bæti þannig samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Samtökin leggja ríka áherslu á að tryggt verði fullt samræmi í stærðarflokkunum þvert á lagabálka og eftirlitsaðila. Óásættanlegt sé að fyrirtæki geti fallið í ólíka stærðarflokka eftir því hvaða reglur eigi við, enda auki slíkt flækjustig og eftirlitsbyrði.

 

Lestu meira á vef SA
 

Plan sem virkar

 
 

„Churchill hafa ranglega verið eignaðar ýmsar fleygar tilvitnanir. Ein þeirra er að Bandaríkjamenn geri ávallt rétt, en einungis þegar allir aðrir valmöguleikar hafa verið reyndir til þrautar. Þessi dægrin er ekki annað hægt en að spyrja sig hvort stjórnvöld hafi tekið upp sambærilegt verklag í efnahagsmálunum.,“ segir í grein Ísaks Einars Rúnarssonar, forstöðumanns málefnasviðs SA, í grein sem birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.

Lestu meira á vef SA
 

Lestrarhvatning fyrir fullorðið fólk

 
 

Miðstöð íslenskra bókmennta stendur fyrir sérstöku átaki til að hvetja fullorðið fólk til að lesa en þeim hefur fjölgað nokkuð sem lesa ekki neitt. Á vef verkefnisins Bókaðu stund fyrir bók er hægt að finna frekari upplýsingar fyrir vinnustaði sem vilja stuðla að lestri bóka.

Nánar á vef verkefnisins
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe