|
Mánudagsmolar No images? Click here Alþjóðamolar: Iðnaðarhraðall Evrópusambandsins
Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt fram nýja löggjafartillögu, Industrial Accelerator Act (IAA), sem ætlað er að efla samkeppnishæfni og framleiðslugetu evrópsks iðnaðar. Í fyrsta Alþjóðamola SA fjallar Heiðrún Björk Gísladóttir, lögmaður og alþjóðafulltrúi SA, um helstu áhrif tillögunnar, þar á meðal kröfur um lágt kolefnisspor og „made in Europe“ uppruna í opinberum innkaupum. Fyrir Ísland er lykilatriði að tryggja skýra stöðu innan þessa ramma til að verja samkeppnishæfni og skapa fyrirsjáanleika fyrir atvinnulífið. Alþjóðamolar SA munu birtast mánaðarlega og varpa ljósi á hagsmunagæslu samtakanna á alþjóðavettvangi. Ráðstefna um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið
Samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu eru eitt stærsta hagsmunamál atvinnulífsins. Á morgunverðarráðstefnunni Greiðari leið – hugmyndir óskast! koma saman sérfræðingar og forystufólk stjórnmálaflokkanna í Reykjavík til að greina stöðuna, ræða raunhæfar lausnir og horfa til framtíðar. Ráðstefnan er haldin á morgun, þriðjudag, á Hilton Reykjavík Nordica milli 9.00-10.45. Húsið verður opnað með kaffiveitingum klukkan 8.30. Gagnrýna umfangsmikið eftirlit stjórnvalda
SA og Viðskiptaráð telja tímabundna lækkun virðisaukaskatts geta verið skilvirkt úrræði í því skyni að milda áhrif verðhækkana á heimili og fyrirtæki en gera alvarlegar athugasemdir við umfang og útfærslu annarra þátta frumvarpsins. Fræðslufundur fyrir fyrirtæki – Allan hringinn
Þann 6. maí verður haldinn fræðslufundur í Húsi atvinnulífsins í Hyl frá kl. 09:00–10:00. Þar verður verkefnið Allan hringinn kynnt og farið yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt vefinn til að einfalda flokkun á vinnustöðum og draga úr kostnaði. Fundurinn er opinn og hægt er að taka þátt bæði á staðnum og í streymi, en skráning er nauðsynleg. Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun mun kynna verkefnið og sýna hvernig fyrirtæki geta nýtt sér efni vefsins í framkvæmd. Að kynningu lokinni verða spurningar og umræður. Verkefnið Allan hringinn hófst haustið 2024, Samtök atvinnulífsins lögðu könnun fyrir félagsmenn til að greina hvaða fræðslu og verkfæri vantaði helst varðandi flokkun innan fyrirtækja. Niðurstaðan er vefsíðan Allan hringinn þar sem finna má hagnýtar leiðbeiningar um betri flokkun, sparnað og önnur gagnleg ráð sem fyrirtæki geta nýtt sér. 3. Lyklar að hæfni framtíðarinnar: Hæfnigreining starfa
Vinnumarkaðurinn tekur örum breytingum. Störf breytast og ný störf verða til, jafnvel nýjar atvinnugreinar, sem endurspegla breyttar áherslur, tækniframfarir og sjálfbærni á vinnumarkaði. Hvernig tryggjum við að þekkingin fyrir þessi nýju störf verði til staðar um allt land, svo Ísland verði samkeppnishæft á alþjóðamarkaði? Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA fjallar um hæfnigreiningu starfa í þriðju og síðustu grein sinni um lykla að hæfni framtíðarinnar. Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn 13. maí í Húsi atvinnulífsins
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 13. maí næstkomandi klukkan 11:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf. Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur allra aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins. Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum
Við erum alltaf á vaktinni
Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar. Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA. Gott að vita |