Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Elko er Menntafyrirtæki ársins 2024 Menntaverðlaun atvinnulífsins voru á dögunum veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. Elko er Menntafyrirtæki ársins 2024, en verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. „Ljóst er að stefnumiðuð og markviss vinna í fræðslumálum starfsfólks hefur lagt grunn að mjög góðum árangri í þeirri vegferð fyrirtækisins að auka ánægju starfsfólks og fylgja stefnunni eftir um ánægðustu viðskiptavinina.“ Bara tala hlaut Menntasprotann 2024 Bara tala hlaut í liðinni viku Menntasprotann árið 2024. Bara tala er íslenskur menntasproti sem hóf starfsemi sína árið 2023. Bara tala nýtir sér gervigreind og íslenska máltækni til að veita fyrirtækjum og stofnunum stafrænt og gagnvirkt íslenskunám fyrir erlent starfsfólk sitt. „Við vonumst til þess að Íslendingar, eða þeir sem að tala tungumálið nú þegar, verði betri í því að bara hlusta á meðan að þau sem eru að ná tökum á tungumálinu fá svigrúm til að bara tala. Íslenska með hreim er nefnilega tákn um hugrekki.“ Skortur á starfsfólki dragbítur Menntadagur atvinnulífsins var haldinn í síðustu viku undir yfirskriftinni Göngum í takt: Er menntakerfið að halda í við þarfir atvinnulífsins. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA kynnti niðurstöðurnar uppfærðrar greiningar á eftirspurn eftir vinnuafli þvert á atvinnugreinar. „Það liggur fyrir að tækifærum til aukinnar verðmætasköpunar hefur verið kastað á glæ í alltof langan tíma vegna þess að framboð vinnuafls með rétta færni og menntun hefur ekki verið nægjanlegt. Okkur skortir því samkeppnishæfan mannauð.“ ORF Líftækni og Vow kynna vistkjöt Í liðinni viku fór fram fyrsta opinbera smökkunin í Evrópu á vistkjöti sem er ræktað úr frumum úr japanskri kornhænu. Það voru ORF Líftækni og ástralska nýsköpunarfyrirtækið Vow sem kynntu vistkjötið, en meðal annars var greint frá því að framleiðsla vistkjötsins krefðist minna landsvæðis og vatns. |