No images? Click here

Vonandi fyrsta skrefið í átt að traustari umgjörð um menntakerfið

 

Samtök atvinnulífsins fagna áformum um samræmdari og skýrari umgjörð um námsmat í grunnskólum. Í umsögn sinni leggja samtökin áherslu á mikilvægi þess að mat sé gagnsætt og samanburðarhæft og styðji við úrbætur í skólakerfinu og bættan námsárangur nemenda. Jafnframt hvetja samtökin til aukins samræmds mats á færni nemenda um land allt.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Ský, ský burt með þig

 
 

„Til að styðja við bætta framleiðni, lægri kostnað og minni verðbólgu gætu stjórnvöld lagst á árar með atvinnulífinu – sýnt aukinn aga í ríkisrekstri, dregið úr álögum, létt á reglubyrði og tekið þátt í að skapa heilbrigðari umgjörð um vinnumarkaðinn. Þá myndi örugglega rofa til,“ ritar Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í Endahnút sínum í Viðskiptablaðinu.

Lestu greinina í Viðskiptablaðinu
 

Rjúfum vítahringinn: Myndir í Viðskiptablaðinu

 
 

Viðskiptablaðið birti í síðustu viku myndir frá hringferðarfundi SA í Reykjavík.

Sjáðu myndirnar á VB.is
 

Heilbrigð vinnustaðamenning

 
 

Vinnueftirlitið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið hafa sett á laggirnar starfshóp um áhrif heilbrigðrar vinnustaðamenningar á líðan starfsfólks. Samtök atvinnulífsins eiga þar sæti ásamt fulltrúum helstu aðila vinnumarkaðarins og opinberra stofnana.

Markmiðið er að hvetja vinnustaði til að efla heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem öryggi og vellíðan starfsfólks er í forgrunni og allir bera sameiginlega ábyrgð. Starfshópurinn mun skila tillögum í lok árs 2026.

Samtök atvinnulífsins hafa lengi lagt áherslu á mikilvægi sterks sálfélagslegs vinnuumhverfis. Heilbrigð vinnustaðamenning eykur starfsánægju, virkni og árangur, en vanræksla á þessum þáttum getur leitt til verri afkasta, slysa og aukinna fjarvista með neikvæðum áhrifum á rekstur fyrirtækja.

Umfjöllun um sálfélagslegt vinnuumhverfi hér
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe