Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Upplýsingafundur vegna stöðu kjaraviðræðna Upplýsingafundur um gang kjaraviðræðna verður haldinn föstudaginn 1. mars klukkan 12:00. Fundurinn fer fram á Zoom og er einungis ætlaður félagsmönnum Samtaka atvinnulífsins. Hafi póstur ekki borist með skráningarhlekk má hafa samband við skrifstofuumsjón á netfangið: sigridur@sa.is eða í síma 591 0000. Kjaraviðræður héldu áfram í karphúsinu Kjaraviðræður héldu áfram í Karphúsinu síðastliðinn miðvikudag eftir viðræðuhlé. Í kjölfar þess að sátt náðist um forsenduákvæði kjarasamninganna sleit VR sig frá breiðfylkingu stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði, sem SA hafa átt í samningaviðræðum við undanfarnar vikur. Um helgina hélt samtalið áfram í Karphúsinu og er góður gangur viðræðunum. Óskað eftir tilnefningum í stjórnir lífeyrissjóða Samtök atvinnulífsins óska eftir hæfu fólki til að taka að sér stjórnarstörf í lífeyrissjóðum.Samkvæmt kjarasamningi SA og ASÍ skipa samtökin helming stjórnarmanna í þeim sjö lífeyrissjóðum sem eru á samningssviði aðila og er framkvæmdastjórn SA falin tilnefning stjórnarmanna. Við stöndum vaktina Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu aðildarfyrirtækja þannig að framleiðni og verðmætasköpun þeirra geti aukist. |