Mánudagsmolar SA Birtast myndirnar ekki? Vefútgáfa Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2024 Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram miðvikudaginn 15. maí næstkomandi klukkan 12:00. Fram fara hefðbundin aðalfundarstörf þar sem greint verður meðal annars frá kjöri formanns Samtaka atvinnulífsins og stjórnar SA 2023-2024. Rétt til setu á aðalfundinum eiga stjórnendur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins ásamt starfsmönnum SA og aðildarsamtaka. Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fara fulltrúar í fulltrúaráði með atkvæðarétt. Í kjölfar leysinga siglir fjármálaáætlun Stefanía K. Ásbjörnsdóttir, hagfræðingur á efnahagssviði SA, rýnir í fjármál hins opinbera í aðdraganda fjármálaáætlunar. „Frá árinu 1980 hefur hið opinbera að meðaltali verið rekið með „tapi“ (eða „halla“ eins og það kallast almennt). Af þeim 44 árum sem gögn ná yfir hefur hið opinbera verið rekið með tapi í 30 ár. Ríki geta sannarlega tekið lán og stundað peningaprentun til að fjármagna tapreksturinn en það kann ekki góðri lukku að stýra til lengdar.“ Aðrir sálmar CSRD fundaröð SA og PodiumÞriðjudaginn 16. apríl verður þriðji fundur morgunfundaraðar SA og Podium ehf. um sjálfbærnilöggjöf CSRD og innleiðingu ESRS staðalsins . Efni fundarins verður ESRS S1, S2, S3, S4 - Félagslegir þættir.
Við stöndum vaktina Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu aðildar-fyrirtækja þannig að framleiðni og verðmætasköpun þeirra geti aukist. Á meðal umsagna sem SA hafa skilað á síðustu vikum voru umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stærðarmörk og endurskoðun ársreikninga, umsögn um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum og umsögn um frumvarp til laga um slit ógjaldfærra opinberra aðila Molinn „Lítið fer fyrir skapandi lausnum þegar kemur að útgjaldahliðinni. Að auki er vert að benda á að ekki er víst að þær ráðstafanir sem grípa á til á tekjuhlið skili yfir höfuð auknum tekjum þegar upp er staðið, enda hafa slíkar aðgerðir áhrif á efnahagslega hvata. Tiltekt á útgjaldahlið er líklegri til að skila varanlegum ávinningi eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn -Froðunni fleytt, umsögn SA um fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028 |