Mánudagsmolar

No images? Click here

Kauptaxtaauki tekur gildi 1. apríl 

 

Launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er fulltrúum frá ASÍ og SA, fundaði mánudaginn 9. mars. Á fundinum var úrskurðað að kauptaxtaauki virkist frá og með 1. apríl næstkomandi. Kauptaxtaaukinn felur í sér að kauptaxtar kjarasamninga hækki um 0,06% frá og með 1. apríl 2026 og skýrist af því að launavísitala á almennum markaði hækkaði umfram taxtahækkanir viðmiðunartaxtans á öðru ári stöðugleikasamningsins.

Lestu meira á vef SA
 

Breytingar varla í takti við yfirlýsingar um aukna orkuframleiðslu

 
 

Samtök atvinnulífsins telja frumvarp til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati varla vera í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda um aukna orkuframleiðslu, heldur þvert á móti. „Aukin skattheimta er enda frekar til þess fallin að hafa neikvæð áhrif á uppbyggingu orkuframleiðslu. Samtökin hvetja stjórnvöld til þess að kanna aðrar og hófsamari leiðir til þess að auka ávinning sveitarfélaga af orkumannvirkjum og flýta fyrir leyfisveitingum og framkvæmd skipulags. Algjört afnám undanþágu frá fasteignaskatti á einu bretti mun óhjákvæmilega leiða til hærra raforkuverðs fyrirtækja og heimila sem mun hafa skaðleg áhrif á vísitölu neysluverðs og draga úr samkeppnishæfni og fjárfestingu.“

Lestu umsögnina á vef SA
 

Fyrsta grein af þremur um lykilhæfni framtíðarinnar

 
 

Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður á málefnasviði SA, birti í síðustu viku fyrstu grein sína af þremur um lykilhæfni framtíðarinnar. Í greininni fjallar hún um örnám. 

„Vinnumarkaðurinn breytist hratt. Fyrirtæki þurfa sífellt að bregðast við nýrri tækni, grænum umskiptum og samfélagsbreytingum. Í stöðugri þróun breytast hæfnikröfur starfa og starfsfólk þarf því sífellt að bæta við sig þekkingu og efla sig í takt við þróun samfélagsins. Þessi hraði nútímasamfélags skapar tímapressu þannig fólk hefur oft ekki tíma til að sækja langt nám samhliða fjölbreyttum verkefnum. Með því að bjóða upp á örnám (e: micro credential) verður til sveigjanleg leið til að mæta örum breytingum á vinnumarkaði ásamt nýjum og breyttum hæfnikröfum starfa.“

Lestu greinina á vef SA
 

Jákvætt fyrsta skref til jöfnunar réttinda

 
 

„Samtök atvinnulífsins hafa um langt skeið kallað eftir því að reglur um sérréttindi opinberra starfsmanna verði afnumdar og telja frumvarpsdrögin því mikið gleðiefni. Samtökin telja drögin jákvætt fyrsta skref í að jafna réttindi starfsmanna milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins. Samtökin telja þó miður að frumvarpið gangi ekki lengra en raun ber vitni, sér í lagi með hliðsjón af því að áfram munu ákvæði stjórnsýslulaga gilda um uppsagnir opinberra starfsmanna og verða áhrif afnáms áminningarskyldunnar því minni en ella. Þá telja samtökin tilefni til að endurskoða starfsmannalögin í heild sinni m.t.t. til þess að jafna réttindi, burtséð frá umfjöllun á aðra leið í greinargerð,“ segir í umsögn SA um drög að frumvarpi til laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Lestu umsögnina á vef SA
 

Unga fólkið ber byrðarnar

 
 

„Ef samfélagssáttmálinn á að halda þarf hann að vera réttlátur milli kynslóða, unga vinnandi fólkið má ekki eitt bera byrðarnar.,“ ritar Arnar Birkir Dansson, hagfræðingur á efnahagssviði SA, í grein sem birtist á Vísi.

Lestu greinina á Vísi
 

Sveigjanleiki samstarfsáætlana getur falið í sér áskoranir fyrir EES EFTA ríkin

 
 

SA, SI, SVÞ, SAF, Samorka, SFF og Viðskiptaráð hafa sent inn umsögn um tillögur að þátttöku Íslands í samstarfsáætunum ESB 2028-2034. Í þeim samstarfsáætlunum sem lagt er til að Ísland taki þátt í er lögð mikil áhersla á tækni með tvíþætt notagildi, þ.e. geti nýst í borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi.

„Það eru mikil tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki á þessu sviði og því brýnt að stjórnvöld, í samstarfi við atvinnulífið, hafi augun á boltanum þegar kemur að möguleikum á fjármagni í samstarfsáætlunum ESB en það er sérstaklega mikilvægt núna þegar um svo sveigjanlegar áætlanir er að ræða. Samtökin leggja ríka áherslu á að aukið vægi á tvíþætt notagildi verði ekki til þess að smærri fyrirtæki eða hefðbundin borgaraleg nýsköpun verði útundan. Það er forgangsmál fyrir Ísland að þátttaka í þessum áætlunum byggist á raunhæfu aðgengi fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki, til jafns við stærri og rótgrónari fyrirtæki.“

Lestu umsögnina á vef SA
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
Sjá nánar

Haustskýrsla KTN 2025
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe