Mánudagsmolar 28. september | Að gefnu tilefni | Óvissa varðandi kjarasamninga | Rannveig Rist hlýtur fyrsta Gullmerki SA | Umhverfisdagur atvinnulífsins

No images? Click here

Að gefnu tilefni

 

Samtök atvinnulífsins sendu frá sér fyrr í dag eftirfarandi tilkynningu:

Í umræðu síðustu daga hafa einstakir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar talað um að launafólk hafi verið svikið og gagnrýnt afstöðu Samtaka atvinnulífsins vegna forsendubrests kjarasamninga. SA hafna öllum ásökunum um svik af hálfu samtakanna enda hafa þau staðið að fullu við gerða samninga. Mikilvægt er að umræðan byggist á staðreyndum og gagnkvæmri virðingu svo að unnt sé að ná niðurstöðu um framhaldið.

Finna þarf lausn sem eykur kaupmátt og skapar skilyrði fyrir lægri vöxtum. Sameiginlegar greiningar SA, ASÍ og stjórnvalda sýna að kaupmáttur allra samfélagshópa hefur vaxið, en vonbrigði með þróun verðbólgu og vaxta eru skiljanleg.  Ágreiningur um viðbrögð við þeirri stöðu réttlætir hins vegar ekki ásakanir um svik. Þrátt fyrir að efnahagsaðstæður hafi þróast með verri hætti en vonir stóðu til og kostnaður atvinnurekenda orðið meiri en gert var ráð fyrir við samningsgerðina hafa Samtök atvinnulífsins talað fyrir því að kjarasamningar haldi.

Háir vextir þrengja að fyrirtækjum ekki síður en heimilum. Við þessar aðstæður er ekki svigrúm til launahækkana umfram það sem þegar hefur verið samið um.

SA hafa lagt fram skýrt mat á stöðu atvinnulífsins. Það er ekki að skila auðu þótt niðurstaðan sé önnur en viðsemjendur okkar hefðu óskað. Fjölmörg fyrirtæki hafa svarað kalli Samtaka atvinnulífsins og tilkynnt um frystingu verðs eða lækkun á síðustu vikum.

Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að draga úr kostnaðarþrýstingi, meðal annars með því að stjórnvöld haldi aftur af skatta- og gjaldskrárhækkunum. Aðgerðir í þá átt hjálpa til við að verja kjarasamningana, en því miður stefnir í umtalsverðar skattahækkanir með nýjum fjárlögum.

SA vilja áfram vinna með verkalýðshreyfingunni og stjórnvöldum að niðurstöðu sem tryggir að samningarnir haldi og stuðlar að varanlegum stöðugleika.

 

Staðan er snúin

 

„Þetta er bara mjög snúin staða og það sem við erum að horfa upp á núna eru kannski áhrif þess að verðbólga og vextir séu í þessum hæðum í þetta langan tíma. Það skapar mjög snúnar aðstæður,“ sagði Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við RÚV fyrr í kvöld, mánudagskvöld. „En við treystum okkur hins vegar ekki til að taka á okkur enn frekari kostnaðarauka ofan á skattahækkanir ríkisstjórnarinnar, þetta er að verða of mikið.“ 

Lestu fréttina á vef RÚV
 

Umhverfisdagur atvinnulífsins er 27. október

 

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 verður haldinn í ellefta sinn þriðjudaginn 27. október undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands. Fundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Grand frá kl. 13:00–15:15.

Nánari upplýsingar og skráning

Búið er að opna fyrir tilnefningar til Umhverfisfyrirtækis ársins 2026. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem skarar fram úr í umhverfis- og loftslagsmálum og sýnir í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun.

Frestur til að senda inn tilnefningu er til og með 10. október næstkomandi.

Tilnefndu Umhverfisfyrirtæki ársins 2026
 

Rannveig Rist sæmd fyrsta Gullmerki Samtaka atvinnulífsins

 

Rannveig Rist var sæmd fyrsta gullmerki Samtaka atvinnulífsins á ársfundi atvinnulífsins 1. október fyrir einstakt framlag til íslensks atvinnulífs og samtakanna. 

Í ávarpi sínu sagði Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, að Rannveig hefði sett sterkan svip á íslenskt atvinnulíf um áratugaskeið. Hún hefði leitt eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins í gegnum miklar breytingar og krefjandi tíma.

„Hún hefur verið óþreytandi talsmaður menntunar, þekkingar og ábyrgðar í atvinnulífinu og rutt konum braut inn á svið þar sem þær höfðu áður verið fáar,“ sagði Jón Ólafur.

Hann þakkaði jafnframt framlag Rannveigar í stjórn og framkvæmdastjórn SA, þar sem reynsla hennar, festa og skýr sýn á langtímahagsmuni atvinnulífsins hefðu verið samtökunum mikilvæg.

Rannveig flutti einnig ávarp á ársfundinum sem hægt er að horfa á vefsíðu SA.

 

Horfðu á ávarp Rannveigar Rist á vefsíðu SA
 

Ráðast þarf í ákveðnar kerfisbreytingar á vinnumarkaði

 

„Til viðbótar við skemmri tíma átak, sem felst meðal annars í yfirlýsingum frá fyrirtækjum um að halda tímabundið aftur af verðlagshækkunum, höfum við verið að leggja áherslu á að það þurfi að ráðast í ákveðnar kerfisbreytingar á vinnumarkaði sem eru til þess fallnar að lækka varanlega verðbólguvæntingar í hagkerfinu. Þær byggja á því að við náum að tryggja að launamyndun í hagkerfinu sé í takt við undirliggjandi verðmætasköpunm,“ sagði Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í viðtali við Morgunblaðið í tilefni af nýrri verðbólgumælingu.

Lestu fréttina á Mbl.is
 

Hefur þú svarað könnuninni um umhverfismál og alþjóðaviðskipti?

SA og aðildarsamtök standa nú fyrir könnun meðal fyrirtækja um umhverfismál og alþjóðaviðskipti. Könnunin hefur verið send í tölvupósti til félagsmanna og hvetjum við þau sem hafa fengið hana til að gefa sér nokkrar mínútur til að svara.

Niðurstöðurnar verða nýttar í hagsmunagæslu SA og aðildarsamtaka, meðal annars í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins 27. október.

Hluti könnunarinnar um alþjóðaviðskipti er hluti af sameiginlegu norrænu verkefni um reynslu fyrirtækja af norrænum mörkuðum og innri markaði ESB. Svörin nýtast til að kortleggja hindranir og stuðla að betri virkni þessara markaða.

Farið er með öll svör sem trúnaðarmál.

 

„Tortryggni skapar engin störf“

 

Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, lagði út frá stofnun Eimskipafélagsins, óskabarns þjóðarinnar, í setningarávarpi sínu á Ársfundi atvinnulífsins. Hann ræddi um áræðni og athafnafrelsi og mikilvægi þess að stjórnvöld stæðu með atvinnulífinu.

„Það er hættuleg þróun þegar stjórnmálin ala á óvild milli hópa í samfélaginu og gera þá að andstæðingum sem þurfa að vinna saman, verða að vinna saman. Tortryggni skapar engin störf. Tortryggni byggir ekkert upp. Ríkisstjórnin getur ekki kallað eftir meiri fjárfestingu og betri lífskjörum og á sama tíma grafið undan trausti til þeirra sem eiga að skapa hvort tveggja. Hún þarf að virða framlag atvinnulífsins og standa með því í verki. Boðuð hækkun bankaskatts og auknar álögur á ferðaþjónustu ganga í öfuga átt. Hærri bankaskattur getur gert fjármögnun heimila og fyrirtækja dýrari. Auknir skattar og gjöld á ferðaþjónustu þrengja að samkeppnishæfni greinar sem skapar störf um allt land. Það er mótsögn að kalla eftir meiri fjárfestingu og leggja um leið þyngri byrðar á uppbygginguna. Ríkisstjórnin þarf að skapa svigrúm til vaxtar.
Við í atvinnulífinu berum líka ábyrgð og erum tilbúin að axla hana. Hagsmunir Íslands krefjast þess að við séum samherjar. Við getum deilt um leiðirnar en samkeppnishæfni landsins og lífskjör fólksins verða að vera sameiginlegt verkefni okkar.“
 

Horfðu á ávarp Jóns Ólafs á vef SA
 

Taktu daginn frá!

 

Ný útgáfa af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja verður kynnt í húsakynnum Nasdaq á Íslandi, Laugavegi 182, þann 21. október kl. 16:00.

Nánari dagskrá verður kynnt fljótlega.

Skráðu þig hér
 

Samtök atvinnulífsins á samfélagsmiðlum

 
Fylgstu með SA á Facebook
Fylgstu með SA á Instagram
Fylgstu með SA á LinkedIn
 

Við erum alltaf á vaktinni

 

Samtök atvinnulífsins vinna markvisst að hagsmunagæslu í þágu atvinnulífsins og því að tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði - landsmönnum öllum til hagsbóta. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að vakta þingmál er varða félagsmenn og atvinnulífið í heild og berst SA jafnframt mikill fjöldi þingmála til umsagnar.

Síðustu umsagnir SA má lesa á heimasíðu SA.

Lesa umsagnir
 

Gott að vita

 
 
 

Öflugur útflutningur
 

 
 
Sjá nánar

Vorskýrsla KTN 2026
 

 
 
Sjá nánar
 

Fræðsla um EKKO mál
 

 
Sjá nánar
 
 
 
 
  Share 
  Tweet 
  Share 
  Forward 

Samtök atvinnulífsins

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

108 Reykjavík

Mánudagsmolar

Pósturinn er sendur á tengiliðalista SA

Preferences  |  Unsubscribe